Þórunn Teitsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Þórunn Teitsdóttir húsfreyja á Gjábakka fæddist 30. janúar 1778 og lést 14. ágúst 1830 í Skildinganesi.
Foreldrar hennar voru Teitur Sveinsson vefari í Reykjavík, f. 1738, d. 28. september 1809, og kona hans Guðríður Gunnarsdóttir húsfreyja og ljósmóðir, f. 1748, d. 1820.

Þórunn var með foreldrum sínum í Reykjavík 1801.
Þau Magnús hófu búskap í Reykjavík og eignuðust fyrstu börn sín þar.
Þau voru komin til Eyja 1812 og bjuggu í Kornhól með 5 börn sín, Björn 8 ára, Teit 7 ára, Guðríði 6 ára, Guðúnu 2 ára og Margréti á fyrsta ári. Þar var hún með sömu áhöfn 1813, en 1814 var Teitur ekki með þeim. Hann var í fóstri á Hlíðarenda í Fljótshlíð hjá Vigfúsi Thorarensen sýslumanni. 1815 hafði Jón bæst við hópinn.
1816 bjuggu hjónin á Gjábakka, en Grímur Pálsson var orðinn faktor í Kornhól.
Þau eignuðust tvíbura í maí 1817, en þeir dó báðir nokkurra daga gamlir, og Björn sonur þeirra hrapaði til bana úr Hrútaskorum í Bjarnarey í júlí.
1819 eignuðust þau andvana sveinbarn.
Teitur var kominn til þeirra að nýju 1820.
Þau fluttust að Skildinganesi 1823 með 4 börn sín, Teit, Jón, Guðríði og Guðrúnu.
Þórunn lést 1830.

Maður Þórunnar, (8. september 1804), var Magnús Ólafsson Bergmann verslunarstjóri (faktor) í Kornhól, síðar lögsagnari, f. 1774.
Börn þeirra hér:
1. Björn Magnússon, f. 13. júni 1805 í Reykjavík, hrapaði til bana úr Hrútaskorum í Bjarnarey 7. júlí 1817.
2. Teitur Bergmann Magnússon silfursmiður í Litlabæ á Álftanesi, f. 15. júlí 1806, d. 10. nóvember 1849.
3. Guðríður Magnúsdóttir húsfreyja, prestkona í Miklaholti í Hnappadalssýslu 1860, f. 1. október 1807 í Reykjavík, d. 14. júlí 1880.
4. Guðrún Magnúsdóttir húsfreyja víða í Borgarfirði, síðast á Læk í Leirársveit, f. 1810 í Reykjavík, d. 23. maí 1866.
5. Margrét Magnúsdóttir vinnukona, f. 3. nóvember 1812 í Kornhól. Hún var vinnukona á Þingeyrarklaustri 1835, hjá Guðríði systur sinni á Stað í Grindavík 1845 og 1850, hjá henni í Miklaholti í Hnapp. 1855 og 1860, fluttist til systur sinnar að Læk í Melasveit 1864, þaðan að Kjaransstöðum á Skipaskaga, lést þar 16. maí 1866.
6. Jón Magnússon Bergmann bóndi á Hópi í Grindavík 1850, kvæntur bóndi vinnumaður í Miklaholti í Hnapp. 1870, f. 8. desember 1815 í Kornhól.
7. Sigríður Magnúsdóttir, tvíburi, f. 10. maí 1817, d. 17. maí 1817 úr „Barnaveikleika“.
8. Guðmundur Magnússon, tvíburi, f. 10. maí 1817, d. 15. maí „deiði af barnaveikinni“.
9. Andvana fætt sveinbarn 11. nóvember 1819.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Ættir Austur-Húnvetninga. Guðmundur Sigurður Jóhannsson og Magnús Björnsson. Mál og mynd 1999.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.