Ólafur H. Jensson (póstmeistari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Ólafur Helgi Jensson)
Fara í flakk Fara í leit

Ólafur Helgi Jensson frá Innri-Veðrará í Önundarfirði, póstmeistari, fæddist 8. janúar 1879 á Kroppsstöðum þar og lést 11. júní 1948.
Foreldrar hans voru Jens Jónsson bóndi, f. 8. desember 1826 í Holti í Önundarfirði, d. 23. ágúst 1899, og kona hans Sigríður Jónatansdóttir frá Veðrará, húsfreyja, yfirsetukona, f. 3. desember 1832 í Kirkjubólssókn á Langadalsströnd, N.-Ís., d. 13. apríl 1903.

Ólafur var með foreldrum sínum í æsku, á Kroppsstöðum í Önundarfirði 1880, á Veðrará þar 1890, leigjandi í Einarshúsi á Sauðárkróki 1901.
Þau Lilja giftu sig 1903, eignuðust fimm börn, en misstu tvö þeirra ung.
Þau bjuggu í fyrstu á Hófsósi og var Ólafur þar kaupmaður og bátaútvegsmaður. Þau fluttu til Siglufjarðar 1922 og þar vann Ólafur bankastörf. Í Eyjum var Ólafur póstafreiðslumaður í Pósthúsinu á Borg, póstmeistari.
Þau fluttu til Eyja 1927, bjuggu í Hörgsholti við Skólaveg 1927 með þrem barna sinna, á Fífilgötu 5 1930 með Baldri, á Geirlandi við Vestmannabraut 8 1934, Fífilgötu 5 1935 til 1940, á Einidrangi við Brekastíg 29 1940 til 1947, en þau voru hjá Baldri og Jóhönnu á Ásavegi 5 frá 1947.
Ólafur lést 1948 og Lilja 1954.

I. Kona Ólafs, (1903), var Lilja Haraldsdóttir frá Bjarnastöðum í Skagafirði, f. þar 8. nóvember 1882, d. 3. desember 1954.
Börn þeirra:
1. Ásta Sigríður Ólafsdóttir húsfreyja, f. 8. september 1904, d. 3. desember 1985. Maður hennar Oddgeir Hjartarson.
2. Haraldur Ólafsson sjómaður, f. 23. apríl 1906, drukknaði 14. maí 1922.
3. Jens Sigurður Ólafsson bifreiðastjóri, f. 19. maí 1909, d. 23. febrúar 1992. Kona hans Kristný Jónína Valdadóttir.
4. Baldur Ólafsson bankastjóri, f. 2. ágúst 1911, d. 27. desember 1988. Kona hans var Jóhanna Andrea Ágústsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Skagfirskar æviskrár – Tímabilið 1890-1910. Margir höfundar. Ritstjóri: Eiríkur Kristinsson. Sögufélag Skagfirðinga, Sauðárkróki 1964-1972.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.