Ólafur Ari Jónsson
Ólafur Ari Jónsson, lögfræðingur hjá Medis ehf., fæddist 7. desember 1976.
Foreldrar hans Jón Ólafur Vigfússon frá Gíslholti við Landagötu 20, vélstjóri, forstjóri, f. 18. júlí 1944, d. 31. október 2022, og kona hans Guðrún Selma Pálsdóttir frá Akurey við Vestmannabraut 46a, húsfreyja, læknaritari, talsímakona, f. 17. júní 1946.
Börn Selmu og Jóns:
1. Jón Kristinn Jónsson ævintýraleiðsögufræðingur, rekur fyrirtækið Amazing Tours, f. 29. nóvember 1963. Kona hans Ingveldur Gyða Kristinsdóttir.
2. Gunnar Þór Jónsson heimilislæknir í Hafnarfirði, f. 8. júní 1965 í Eyjum. Kona hans Hulda Soffía Hermannsdóttir.
3. Ólafur Ari Jónsson lögfræðingur hjá Medis ehf., f. 7. desember 1976. Kona hans Eva Dögg Gylfadóttir.
Þau Eva Dögg giftu sig, eignuðust tvö börn. Þau búa í Hfirði.
I. Kona Ólafs Ara er Eva Dögg Gylfadóttir, úr Hfirði, sálfræðingur hjá Ráðgjafar- og greiningastöð, f. 10. júní 1976. Foreldrar hennar Gylfi Kjartansson, f. 6. október 1951, og Ása Bjarney Árnadóttir, f. 31. mars 1951, d. 5. ágúst 2024.
Börn þeirra:
1. Hrafnhildur Ása Ólafsdóttir, f. 22. mars 2006.
2. Dagur Ari Ólafsson, f. 16. ágúst 2007.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Ólafur Ari.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.