„Vestmannaeyjabær“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
(breytingar: ábendingar Kári Bjarnason)
Lína 4: Lína 4:
Í upphafi [[landnám]]s komu Vestmannaeyjar fyrst við sögu, en þá flýðu þrælar Hjörleifs, fóstbróður Ingólfs Arnarsonar, til Eyja eftir að hafa drepið Hjörleif og fylgdarlið hans. Þá segir í Landnámu að [[Herjólfur Bárðarson]] hafi fyrstur manna numið land í Vestmannaeyjum um 900.

[[Gissur hvíti]] og [[Hjalti Skeggjason]] byggðu kirkju á [[Hörgaeyri]], sunnan við [[Heimaklettur|Heimaklett]], í kringum árið 1000 og var það fyrsta kirkja sem byggð var á Íslandi.
[[Gissur hvíti]] og [[Hjalti Skeggjason]] reistu kirkju á [[Hörgaeyri]], sunnan við [[Heimaklettur|Heimaklett]], í kringum árið 1000 og var það fyrsta kirkja sem byggð var á Íslandi.

Vestmannaeyjar voru í bændaeign fram  á 12. öld er þær komust í eigu Skálholtsstóls. Í byrjun 15. aldar verða þær síðan eign Danakonungs.
Vestmannaeyjar voru í bændaeign fram  á 12. öld er þær komust í eigu Skálholtsstóls. Í byrjun 15. aldar verða þær síðan eign Danakonungs.

Árið 1609 urðu Vestmannaeyjar sérstök sýsla og árið 1874 urðu þær ríkiseign.
Árið 1609 urðu Vestmannaeyjar sérstök sýsla og árið 1874 ríkiseign.

Árið 1627 réðust [[Tyrkjaránið|sjóræningjar]] á land í Eyjum og rændu 242 og drápu 36 íbúa. Í Vestmannaeyjum bjuggu um 500 manns á þessum tíma, þannig að aðeins 200 manns sluppu undan árásinni. Af þeim sem seldir voru til þrælkunar í Algeirsborg komu aðeins 22 aftur til Eyja.
Árið 1627 réðust [[Tyrkjaránið|sjóræningjar]] á land í Eyjum og rændu 242 íbúa og drápu 36. Í Vestmannaeyjum bjuggu um 500 manns á þessum tíma, aðeins 200 manns sluppu undan árásinni. Af þeim, sem seldir voru til þrælkunar í Algeirsborg, komu aðeins 22 aftur til Eyja.

Í [[Jarðabók Árna Magnússonar|Jarðabók Árna Magnússonar]] frá 1703 eru íbúar í Vestmannaeyjum 318 talsins. Á 18. öld fækkaði heldur íbúum og um aldamótin 1800 bjuggu aðeins 173 í Eyjum.
Í [[Jarðabók Árna Magnússonar|Jarðabók Árna Magnússonar]] frá 1703 eru íbúar í Vestmannaeyjum taldir 318. Á 18. öld fækkaði þeim heldur, og um aldamótin 1800 bjuggu aðeins 173 í Eyjum.

[[Mynd:Vestmannaeyjar um 1930.jpg|thumb|350px|left|Vestmannaeyjabær um 1930.]]
[[Mynd:Vestmannaeyjar um 1930.jpg|thumb|350px|left|Vestmannaeyjabær um 1930.]]
Meðan konungsútgerð og útgerð einokunarkaupmanna var við lýði voru Eyjamenn skyldaðir til að róa á dönskum skipum. Þegar einokuninni lauk áttu eyjaskeggjar því engin vertíðarskip og þau skip sem voru fyrir í Vestmannaeyjum voru seld. Lítið var því um útgerð á 19. öldinni, en gerðar voru tilraunir til þilskipaútgerðar á seinni hluta aldarinnar. Þær tilraunir gengu hins vegar ekki vel.
Meðan konungsútgerð og útgerð einokunarkaupmanna hélst við lýði voru Eyjamenn skyldaðir til að róa á dönskum skipum. Þegar einokuninni lauk áttu eyjaskeggjar því engin vertíðarskip og þau skip sem fyrir voru í Vestmannaeyjum seld. Lítið var því um útgerð á 19. öldinni, en gerðar voru tilraunir til þilskipaútgerðar á seinni hluta aldarinnar. Þær tilraunir gengu ekki vel.

[[Vélbátaútgerð]] hófst upp úr 1906 og fjölgaði vélbátum ört á næstu árum á eftir. Árið 1912 voru 58 vélbátar sem reru frá Vestmannaeyjum sem þá voru orðnar stærsta verstöð á landinu. Óhætt er að segja að fiskveiðar og fiskvinnsla, ásamt þjónustu við sjávarútveginn, hafi upp frá því verið burðarás atvinnulífs í Vestmannaeyjum. Með tilkomu vélbátaútgerðarinnar margfaldaðist íbúafjöldi Eyjanna, úr 550 manns árið 550 í 2.033 árið 1918.  
[[Vélbátaútgerð]] hófst upp úr 1906 og fjölgaði vélbátum ört á næstu árum. Árið 1912 voru 58 vélbátar, sem reru frá Vestmannaeyjum sem þá voru orðnar stærsta verstöð á landinu. Óhætt er að segja að fiskveiðar og fiskvinnsla, ásamt þjónustu við sjávarútveginn, hafi upp frá því verið burðarás atvinnulífs í Vestmannaeyjum. Með tilkomu vélbátaútgerðar margfaldaðist íbúafjöldi Eyjanna úr 550 manns árið 1900 í 2.033 árið 1918.  

== Vestmannaeyjar verða kaupstaður ==
== Vestmannaeyjar verða kaupstaður ==

Útgáfa síðunnar 15. júní 2007 kl. 08:36

„Víst er fagur Vestmannaeyjabær, vinaleg er einnig Heimaey,“ segir í laginu. Herjólfur siglir inn innsiglinguna í blíðskaparveðri.

Landnám og fyrstu aldir

Í upphafi landnáms komu Vestmannaeyjar fyrst við sögu, en þá flýðu þrælar Hjörleifs, fóstbróður Ingólfs Arnarsonar, til Eyja eftir að hafa drepið Hjörleif og fylgdarlið hans. Þá segir í Landnámu að Herjólfur Bárðarson hafi fyrstur manna numið land í Vestmannaeyjum um 900.

Gissur hvíti og Hjalti Skeggjason reistu kirkju á Hörgaeyri, sunnan við Heimaklett, í kringum árið 1000 og var það fyrsta kirkja sem byggð var á Íslandi.

Vestmannaeyjar voru í bændaeign fram á 12. öld er þær komust í eigu Skálholtsstóls. Í byrjun 15. aldar verða þær síðan eign Danakonungs.

Árið 1609 urðu Vestmannaeyjar sérstök sýsla og árið 1874 ríkiseign.

Árið 1627 réðust sjóræningjar á land í Eyjum og rændu 242 íbúa og drápu 36. Í Vestmannaeyjum bjuggu um 500 manns á þessum tíma, aðeins 200 manns sluppu undan árásinni. Af þeim, sem seldir voru til þrælkunar í Algeirsborg, komu aðeins 22 aftur til Eyja.

Í Jarðabók Árna Magnússonar frá 1703 eru íbúar í Vestmannaeyjum taldir 318. Á 18. öld fækkaði þeim heldur, og um aldamótin 1800 bjuggu aðeins 173 í Eyjum.

Vestmannaeyjabær um 1930.

Meðan konungsútgerð og útgerð einokunarkaupmanna hélst við lýði voru Eyjamenn skyldaðir til að róa á dönskum skipum. Þegar einokuninni lauk áttu eyjaskeggjar því engin vertíðarskip og þau skip sem fyrir voru í Vestmannaeyjum seld. Lítið var því um útgerð á 19. öldinni, en gerðar voru tilraunir til þilskipaútgerðar á seinni hluta aldarinnar. Þær tilraunir gengu ekki vel.

Vélbátaútgerð hófst upp úr 1906 og fjölgaði vélbátum ört á næstu árum. Árið 1912 voru 58 vélbátar, sem reru frá Vestmannaeyjum sem þá voru orðnar stærsta verstöð á landinu. Óhætt er að segja að fiskveiðar og fiskvinnsla, ásamt þjónustu við sjávarútveginn, hafi upp frá því verið burðarás atvinnulífs í Vestmannaeyjum. Með tilkomu vélbátaútgerðar margfaldaðist íbúafjöldi Eyjanna úr 550 manns árið 1900 í 2.033 árið 1918.

Vestmannaeyjar verða kaupstaður

Árið 1918 fengu Vestmannaeyjar kaupstaðarréttindi og kusu Eyjamenn sína fyrstu bæjarstjórn 16. janúar 1919. Þá voru Eyjamenn orðnir rúmlega 2.000 og síðasti áratugurinn verið með gullgrafarabrag.

Deildir bæjarins

Vestmannaeyjabær starfrækir ýmsar deildir og stofnanir:

Sjá einnig