Íþróttamiðstöðin

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Íþróttamiðstöðin

Íþróttamiðstöðin í Brimhólalaut var byggð árið 1976 og var þá 3.414 m². Vígsla hallarinnar fór fram laugardaginn 10. júlí 1976 í frábæru veðri að viðstöddum um 1000 manns. Mikill áhugi var fyrir þessu nýja húsi og til marks um það fóru 1329 manns í laugina mánudaginn eftir vígsluna.

Bygging Íþróttamiðstöðvarinnar

Í desember árið 1973 var skipuð nefnd sem skyldi athuga byggingu varanlegra íþróttamannvirkja í Vestmannaeyjum. Nefndin, skipuð einvala liði, hafði 100 milljónir til umráða og ákvað að nýta þær vel vegna hækkandi verðbólgu. Verkið var boðið út og tilboði erlends verktaka, „Klemensen og Nilsen“, tekið. Fyrsta áfanga af þremur var lokið 15. júní 1975. Það var sundhöllin. Seinni áföngunum, tengihúsi og íþróttavöllum, var svo lokið um haust og vetur og þeir afhentir við hátíðlega athöfn, eins og fyrr segir, 10. júlí 1976.

Bygging nýs húss

Fyrsta skóflustunga að nýja íþróttahúsinu var tekin 17. júní árið 2000 og voru verklok 28. desember 2001. Hið nýja íþróttahús er 3.081 m² og þegar við það er bætt eldra húsinu og stækkun á aðalandyri og millibyggingu til austurs þá er allt húsið 6.581 m².

Útisvæði sundlaugar

Í nýja salnum (sem er sá stærsti á landinu) eru áhorfendapallar beggja vegna fyrir um 800 manns, þar af 600 í sætum. Íþróttamiðstöðin býður nú upp á fullkomnar keppnisaðstæður fyrir nánast allar keppnisíþróttir, hér er fullkomnasta fimleikagryfja landsins, 3 löglegir handboltavellir, líkamsræktarsalur og ein besta sundlaug landsins. Þá er einnig boðið upp á glæsilega skrifstofuaðstöðu fyrir allar deildir ÍBV. Starfsmannafjöldi er 14 í 100% stöðugildi og einn í 50% stöðugildi og er unnið á vöktum. Fjöldi sem kemur árlega í húsið er í kringum 220.000 manns og má því reikna með að á 26 árum hafi um 5,7 milljónir manna komið í húsið en ætla má að einhverjir hafi komið oftar en einu sinni.

Íþróttamiðstöðin var vígð 12.september 1976, skv. upplýsingum frá Páli Zóphóníassyni.



Heimildir

  • Aðalskipulag Vestmannaeyja 2002-2014
  • Íþróttamiðstöðin. Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1977.