Valgerður Eiríksdóttir (Vesturhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. apríl 2013 kl. 20:42 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. apríl 2013 kl. 20:42 eftir Víglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Valgerður Eiríksdóttir''' húsfreyja á Vesturhúsum fæddist 23. október 1856 og lést 25. júní 1918.<br> Foreldrar hennar voru [[Eiríkur Eiríksson (Vesturhúsum)|Eiríku...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Valgerður Eiríksdóttir húsfreyja á Vesturhúsum fæddist 23. október 1856 og lést 25. júní 1918.
Foreldrar hennar voru Eiríkur tómthúsmaður í Helgahjalli, síðar bóndi á Vesturhúsum, skírður 3. mars 1827, d. 1882 og kona hans Katrín Eyjólfsdóttir húsfreyja í Helgahjalli og síðar á Vesturhúsum, f. 28. júní 1834, d. 2. apríl 1915.

Valgerður var í foreldrahúsum í Helgahjalli 1860, á Vesturhúsum 1870. Hún var húsfreyja á Vesturhúsum 1890 með Eyjólfi manni sínum, syni þeirra Eiríki og móður sinni, ekkjunni Katrínu Eyjólfsdóttur. 1901 er hún húsfreyja á Vesturhúsum með Eyjólfi manni sínum, þrem börnum sínum, Eiríki, Eyjólfi og Jóni, en 1910 er hún þar búandi ekkja með þrem börnum sínum og móður sinni. Eiríkur er horfinn, en Magnúsína er komin.

Maður Valgerðar (1888) var Eyjólfur Jónsson bóndi, f. 1862, d. 1906.

Börn Valgerðar og Eyjólfs voru:
1. Eiríkur, f. 1888. Hann týndist í Ameríku.
2. Magnúsína, f. 16. september 1892, d. 9. febrúar 1968. Hún var gift Einari skipstjóra á varðskipinu ,,Ægi“. Þau skildu.
3. Eyjólfur, f. 29. júní 1896, d. 9. maí 1933. Hann var í Hafnarfirði. Kvæntur.
4. Jón Vestmann, f. 26. mars 1898. Hann lést 11. maí 1911, hinn mesti mannsefnispiltur.


Heimildir