Eyjólfur Eyjólfsson (Vesturhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Eyjólfur Eyjólfsson sjómaður frá Vesturhúsum fæddist 29. júní 1896 og lést 9. maí 1933.
Foreldrar hans voru Eyjólfur Jónsson bóndi á Vesturhúsum, f. 18. ágúst 1862, d. 16. júlí 1906, og kona hans var Valgerður Eiríksdóttir húsfreyja, f. 23. október 1856, d. 25. júní 1918.

Eyjólfur var með foreldrum sínum í æsku, var með móður sinni 1906 og enn 1917.
Hann var sjómaður í Hafnarfirði 1920 með Sigríði Einarsdóttur konu sinni og börnin Valgerði og Rósu, sjómaður þar 1930.

Kona Eyjólfs var Sigríður Einarsdóttir frá Bjarnastöðum í Bessastaðahreppi, húsfreyja, f. 10. ágúst 1895, d. 11. september 1988.
Börn þeirra hér:
1. Valgerður Magnúsína Eyjólfsdóttir, síðast í Reykjavík, húsfreyja, sjúkraliði á Landakotsspítala, f. 6. október 1917 í Eyjum, d. 9. mars 2000.
2. Rósa Karítas Eyjólfsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 19. júní 1919, d. 28. október 1999.
3. Sigríður Erla Eyjólfsdóttir, f. 21. nóvember 1921, d. 8. september 1922.
4. Einar Eyjólfsson kaupmaður, f. 7. júní 1923, d. 6. janúar 1982.
5. Sigríður Erla Eyjólfsdóttir ritari, f. 24. júní 1924, d. 3. september 1985.
6. Ingólfur Vestmann Eyjólfsson sjómaður, f. 11. október 1925, d. 17. ágúst 1951.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.