Bjarni Eyjólfsson (verkstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. maí 2013 kl. 12:22 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. maí 2013 kl. 12:22 eftir Víglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Bjarni Eyjólfsson''' verkstjóri, fæddist 2. nóvember 1904 og lést 30. janúar 1985.<br> Faðir hans var Eyjólfur sjómaður í Skipagerði á Stokkseyri, f. 5. janúar 1869, d. ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Bjarni Eyjólfsson verkstjóri, fæddist 2. nóvember 1904 og lést 30. janúar 1985.
Faðir hans var Eyjólfur sjómaður í Skipagerði á Stokkseyri, f. 5. janúar 1869, d. 5. maí 1959, Bjarnason formanns í Símonarhúsum á Stokkseyri, f. 7. október 1835, d. 10. janúar 1914, Jónssonar bónda í Símonarhúsum, áður á Syðri-Sýrlæk í Flóa, f. 14. september 1792, d. 18. júlí 1864, Bjarnasonar, og konu Jóns, Kristínar húsfreyju, f. 13. desember 1794, d. 27. júní 1874, Jónsdóttur.
Móðir Eyjólfs í Skipagerði og kona Bjarna í Símonarhúsum var Þórdís húsfreyja, f. 10. mars 1835, d. 8. maí 1907, Eyjólfsdóttir bónda í Eystra-Íragerði á Stokkseyri, f. 1793, d. 30. mars 1852, Pálssonar, og konu Eyjólfs, Þóru húsfreyju, f. 1793, d. 8. maí 1868 í Eystra-Íragerði, Sigurðardóttur.
.

Hjónin Bjarni Eyjólfsson og Guðrún Guðjónsdóttir.
Húsið að Austurvegi 16.

Móðir Bjarna Eyjólfssonar og fyrri kona Eyjólfs í Skipagerði var Guðný húsfreyja, f. 1878, Guðmundsdóttir bónda og smiðs í Útverkum á Skeiðum, en reisti býlið Stardal á Stokkseyri 1888, f. 30. ágúst 1835, d. 29. desember 1910, Bjarnasonar bónda í Norðurgarði á Skeiðum, f. 1. mars 1802, d. 7. ágúst 1875, Hallssonar, og konu Bjarna í Norðurgarði, Guðnýjar húsfreyju, f. 24. október 1808, d. 29. desmber 1873, Lafransdóttur.
Móðir Guðnýjar í Skipagerði og kona Guðmundar í Stardal var Gjaflaug (líka Gæflaug) húsfreyja í Stardal, f. 1. nóvember 1834, d. 8. ágúst 1914, Þórðardóttir bónda í Eyði-Sandvík í Kaldaðarnessókn 1835, f. 2. maí 1791, d. 31. mars 1866, Oddssonar og konu Þórðar Oddssonar, Þorbjargar húsfreyju, f. 1793, d. 27. júlí 1843, Eyjólfsdóttur.

Bjarni var 6 ára með föður sínum, bústýru hans og dóttur þeirra í Skipagerði 1910.
Hann var lengi bifreiðarstjóri hjá bæjarfélaginu í Eyjum, en síðan verkstjóri þar um árabil.

Kona Bjarna Eyjólfssonar var Guðrún Guðjónsdóttir húsfreyja frá Sigtúni, f. 10. ágúst 1898, d. 16. ágúst 1983.
Þau Guðrún bjuggu í Sigtúni, Háagarði og Ingólfshvoli. Þau byggðu húsið að Austurvegi 16 og bjuggu þar árum saman. Það fór undir hraun.

Börn Bjarna og Guðrúnar:
1. Bjarni Guðjón Bjarnason bryti, f. 3. janúar 1926, búsettur í Hafnarfirði.
2. Guðný Bjarnadóttir húsfreyja á Dalhrauni, f. 25. apríl 1931, gift Leifi Ársælssyni, f. 10. júlí 1931.
3. Barn Guðrúnar og uppeldisbarn Bjarna var Elín Loftsdóttir húsfreyja, f. 5. mars 1922, d. 22. janúar 2005, dóttir Lofts Ólafssonar vélstjóra í Reykjavík, f. 24. apríl 1902, d. 23. júní 1966. Maður Elínar var Gísli Engilbertsson málarameistari, f. 28. aðríl 1919, d. 2. mars 2002.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Heimaslóð.
  • Bólstaðir og búendur í Stokkseyrarhreppi. Guðni Jónsson. Stokkseyringafélagið í Reykjavík 1952.
  • Manntöl.
  • Íslendingabók.is.
  • Garður.is.