Ingólfshvoll

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ingólfshvoll
Ingólfshvoll

Húsið Ingólfshvoll stóð við Landagötu 3a var byggt árið 1902 fyrir beitusíld. Hér var fyrrum íshús Ísfélags Vestmannaeyja. Húsið fór undir hraun.

Nokkrar dætur Steins ásamt sauma- og vinnukonu fyrir utan Ingólfshvol.

Steinn Sigurðsson klæðskeri bjó í húsinu frá árinu 1908. Hann bjó þar ásamt konu sinni Kristínu Hólmfríði Friðriksdóttur og börnum. Þar bjuggu þau til ársins 1929.
Bjarni Eyjólfsson og kona hans Guðrún Guðjónsdóttir bjuggu þar um skeið.
Árið 1953 bjuggu í húsinu Karl Kristmannsson og Betsý Ágústsdóttir og börn þeirra Ingibjörg Karlsdóttir, Viktoría Karlsdóttir, Kolbrún Karlsdóttir, Ágúst Karlsson, Friðrik Karlsson.

Þegar gaus bjuggu þar hjónin Einar Sigurðsson og Rannveig Konráðsdóttir ásamt sonum sínum Arnari og Jóhanni.


Heimildir

  • Íbúaskrá 1. desember 1972.

  • Verkefni Húsin undir hrauninu 2012.