Guðrún Guðjónsdóttir (Sigtúni)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Guðjónsdóttir húsfreyja frá Sigtúni fæddist 10. ágúst 1898 og lést 16. ágúst 1983.
Foreldrar hennar voru Guðjón Guðmundsson trésmíðameistari og sjómaður í Sigtúni, f. 25. september 1867 í Þykkvabæ í Holtum, d. 31. janúar 1952, og Elín Bjarnadóttir húsfreyja, f. 20. nóvember 1865 í Klömbru undir Eyjafjöllum, d. 18. nóvember 1948.

Guðrún var með foreldrum sínum í Krókskoti í Hraungerðissókn 1901 og í Sandvík 1910.
Hún var vinnukona í Húsinu á Eyrarbakka, áður en hún fluttist til Eyja.

Hjónin Bjarni Eyjólfsson og Guðrún Guðjónsdóttir.
Húsið að Austurvegi 16.

Þau Guðrún og Bjarni bjuggu í Sigtúni, Háagarði og Ingólfshvoli. Þau byggðu húsið að Austurvegi 16 og bjuggu þar til Goss. Það fór undir hraun. Þau bjuggu að síðustu í húsi Guðnýjar dóttur sinnar að Hrauntúni 18.
Guðrún lést 1983 og Bjarni 1985.

I. Unnusti Guðrúnar var Loftur Ólafsson vélstjóri, f. 24. apríl 1902, d. 23. júní 1966.
Þau eignuðust barnið:
1. Elínu Loftsdóttur húsfreyju, f. 5. mars 1922, d. 22. janúar 2005. Maður Elínar var Gísli Engilbertsson málarameistari, f. 28. apríl 1919, d. 2. mars 2002.

II. Maður Guðrúnar, (5. desember 1925), var Bjarni Eyjólfsson verkstjóri, f. 2. nóvember 1904, d. 30. janúar 1985.
Börn Guðrúnar og Bjarna:
2. Bjarni Guðjón Bjarnason bryti, f. 3. janúar 1926, d. 12. apríl 2015. Hann bjó síðast í Hafnarfirði. Kona hans var Anna Kristjánsdóttir húsfreyja.
3. Guðný Bjarnadóttir húsfreyja á Dalhrauni, sjúkrahússtarfsmaður, f. 25. apríl 1931, d. 27. ágúst 2017. Maður hennar var Leifur Ársælsson útgerðarmaður, f. 10. júlí 1931, d. 16. september 2017.


Heimildir