Guðrún Þorsteinsdóttir (Lambhaga)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 3. nóvember 2021 kl. 10:38 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 3. nóvember 2021 kl. 10:38 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Guðrún Þorsteinsdóttir (Lambhaga)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Guðrún Þorsteinsdóttir frá Lambhaga, húsfreyja fæddist 14. ágúst 1899 á Tjörnum (Vatnsdal) á Stokkseyri og lést 4. september 1982.
Foreldrar hennar voru Þorsteinn Jónsson bóndi, lengst í Voðmúlastaða-Suðurhjáleigu í A-Landeyjum, síðar í Nikhól í Eyjum, f. 2. október 1872 í Berjanesi í V-Landeyjum, d. 5. nóvember 1954, og kona hans Guðbjörg Jónsdóttir húsfreyja, síðar í Nikhól, f. 12. júní 1863 í Nesi í Aðaldal, S-Þing., d. 17. október 1947 í Eyjum.

Börn Guðbjargar og Þorsteins:
1. Þorsteinn Þorsteinsson útgerðarmaður í Lambhaga, f. 16. júní1893, d. 14. september 1937.
2. Soffía Katrín Þorsteinsdóttir húsfreyja í Odda, f. 31. júlí 1895, d. 21. maí 1978.
3. Guðjón Þorsteinsson útgerðarmaður í Húsavík, f. 20. ágúst 1896, d. 20. júní 1935.
4. Guðrún Þorsteinsdóttir húsfreyja í Lambhaga, f. 14. ágúst 1899, d. 4. september 1982.
5. Haraldur Þorsteinsson verkamaður á Grímsstöðum, f. 5. janúar 1902, d. 11. desember 1974.
6. Gissur Þorsteinsson kaupmaður, sölumaður, bóndi, f. 8. apríl 1903, d. 26. feb. 1975.

Þau Magnús giftu sig 1922, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu í Sandvík 1923 og 1925, (tvö elstu börn þeirra sögð fædd á Bergi á Eyrarbakka). Þau fluttu til Eyja frá Eyrarbakka 1926, bjuggu í Fagranesi við Hásteinsveg 24 1927, síðar í Lambhaga.
Magnús lést 1939.
Guðrún giftist Gísla 1944. Þau bjuggu á Hásteinsvegi 52 við Gos 1972, fluttust til Keflavíkur.
Gísli lést 1977 og Guðrún 1982.

Guðrún var tvígift.
I. Fyrri maður hennar, (1922), var Magnús Jónsson frá Vetleifsholti í Ásahreppi, verkamaður, bræðslumaður, f. 19. ágúst 1875, d. 28. febrúar 1939.
Börn þeirra:
1. Guðríður Magnúsdóttir, f. 14. mars 1923 á Bergi á Eyrarbakka, d. 12. september 1937.
2. Guðsteinn Magnússon, f. 18. mars 1925 á Bergi á Eyrarbakka, d. 4. desember 2009. Kona hans Ragna Guðrún Hermannsdóttir.
3. Guðjón Magnússon, f. 12. ágúst 1927, síðast í Reykjavík, d. 8. júní 1997. Kona hans Sigríður Helga Ívarsdóttir, látin.
4. Björgvin Magnússon, verslunarmaður, kaupmaður í Kópavogi, f. 28. september 1928, d. 2. maí 2013. Kona hans Sigríður K. Karlsdóttir.
5. Jóna Kristbjörg Magnúsdóttir, f. 14. apríl 1930, síðast í Keflavík, d. 30. maí 2001. Maður hennar Gunnar Sigurjónsson.
6. Ása Magnúsdóttir húsfreyja, f. 15. júlí 1931, d. 8. júlí 2002. Maður hennar Jón Hjaltalín Hermundsson.
7. Gísli Magnússon bóndi í Meiri-Tungu í Holtahreppi, Rang, f. 13. desember 1932, d. 25. apríl 1993. Sambúðarkona hans Jóna Sveinsdóttir.
8. Guðríður Steinþóra Magnúsdóttir húsfreyja, f. 11. júlí 1937, síðast í Keflavík, d. 2. september 1995. Maður hennar Helgi Gunnar Egilsson.

II. Síðari maður Guðrúnar, (8. apríl 1944), var Gísli Brynjólfsson sjómaður, húsasmíðameistari, f. 2. október 1903 á Kálfsstöðum í V.-Landeyjum, d. 24. október 1977. Foreldrar hans voru Brynjólfur Gíslason bóndi á Kálfstöðum og Hrauki í V.-Landeyjum, f. 10. desember 1872, d. 31. desember 1931, og kona hans Margrét Bjarnadóttir húsfreyja, f. 16. desember 1874, d. 17. september 1957.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.