Stella Jónsdóttir (Reykholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Stella Jónsdóttir húsfreyja, fiskiðnaðarkona fæddist 31. júlí 1955 og lést 24. júní 1998.
Foreldrar hennar Jón Ingólfsson frá Mandal sjómaður, vélstjóri, stýrimaður, bifreiðastjóri, f. 23. september 1934 í Reykjavík, d. 24. febrúar 2000, og kona hans Halldóra Sigríður Hallbergsdóttir húsfreyja, fiskiðnaðarkona, f. 11. desember 1932 á Blómsturvöllum á Stokkseyri, d. 8. september 2016.

Börn Halldóru og Jóns:
1. Þuríður Jónsdóttir, f. 12. september 1952. Maður hennar Jóel Þór Andersen.
2. Bergþóra Jónsdóttir, f. 24. apríl 1953, d. 13. ágúst 2012. Maður hennar Óskar Veigu Óskarsson.
3. Stella Jónsdóttir, f. 31. júlí 1955, d. 24. júní 1998. Maður hennar Benóný Færseth.
4. Hallbjörg Jónsdóttir, f. 24. ágúst 1956. Maður hennar Róbert Gíslason.
5. Berglind Jónsdóttir, f. 4. janúar 1964. Maður hennar Steinar P. Jónsson.

Stella var með foreldrum sínum í æsku.
Hún vann mikið við fiskiðnað.
Þau Benóný giftu sig 1988, eignuðust fjögur börn.
Þau bjuggu í Eyjum til 1992, er þau fluttu til Keflavíkur.
Stella lést 1998 og Benóný 1999.

I. Maður Stellu, (31. desember 1988), var Benóný Friðrik Færseth skipstjóri, f. 17. febrúar 1955 á Hásteinsvegi 45, d. 31. mars 1999.
Börn þeirra:
1. Jón Gísli Benónýsson flugvallarvörður, járnsmiður, bráðatæknir, f. 22. ágúst 1975 í Eyjum. Kona hans Annika Vigdís Geirsdóttir.
2. Hafþór Benónýsson hárgreiðslumeistari, f. 19. mars 1979. Maki hans Arnar Þór Viðarsson.
3. Sævar Benónýsson Baadermaður hjá Leo Seefood, f. 22. nóvember 1985. Kona hans Unnur Tryggvadóttir.
4. Óðinn Benónýsson Baadermaður hjá Leo Seefood, sjúkraflutningamaður, f. 4. september 1990. Kona hans Sigríður Margrét Sævarsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.