Jón Ingólfsson (Mandal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Jón Ingólfsson.

Jón Ingólfsson sjómaður, vélstjóri, skipstjóri, útgerðarmaður, bifreiðastjóri fæddist 23. september 1934 í Reykjavík og lést 24. febrúar 2000 á Sjúkrahúsinu.
Foreldrar hans voru Ingólfur Guðmundsson frá Ferjubakka í Borgarfirði, verkamaður, ráðsmaður, f. 21. júní 1899, d. 8. janúar 1983, og barnsmóðir hans Bergþóra Jóhannsdóttir, síðar húsfreyja í Mandal, f. 23. nóvember 1906, d. 13. apríl 1983.
Fósturforeldrar Jóns voru Albert Jónsson á Kárastöðum í Borgarhreppi í Mýras., bóndi, afabróðir hans, f. 3. ágúst 1894, d. 25. júní 1982, og kona hans Guðrún Pétursdóttir húsfreyja, f. 19. september 1895, d. 20. mars 1969.

Jón var með móður sinni í fyrstu, en ólst síðan upp á Kárastöðum. Hann flutti til Eyja 1951 og var með móður sinni og Jóni í Mandal.
Hann varð vélstjóri 1954 og lauk Stýrimannaskólanum í Eyjum 1960.
Jón var sjómaður, vélstjóri, skipstjóri, útgerðarmaður og bifreiðastjóri í Eyjum.
Þau Halldóra giftu sig 1953, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu í fyrstu í Mandal, síðar á Brekastíg 32 uns þau festu kaup á Reykholti við Urðarveg 15. Þau höfðu nýflutt í nýlegra og stærra húsnæði við Bakkastíg, þegar Gosið hófst 1973. Þau bjuggu í Hafnarfirði á Gostímanum, en fluttust síðan aftur til Eyja 1974 og bjuggu á Dverghamri 13.
Jón lést 2000 og Halldóra 2016.

I. Kona Jóns, (31. desember 1953), var Halldóra Sigríður Hallbergsdóttir húsfreyja, f. 11. desember 1932 á Blómsturvöllum á Stokkseyri, d. 8. september 2016.
Börn þeirra:
1. Þuríður Jónsdóttir, f. 12. september 1952. Maður hennar Jóel Þór Andersen.
2. Bergþóra Jónsdóttir, f. 24. apríl 1953, d. 13. ágúst 2012. Maður hennar Óskar Óskarsson.
3. Stella Jónsdóttir, f. 31. júlí 1955, d. 24. júní 1998. Maður hennar Benóný Færseth.
4. Hallbjörg Jónsdóttir, f. 24. ágúst 1956. Maður hennar Róbert Gíslason.
5. Berglind Jónsdóttir, f. 4. janúar 1964. Maður hennar Steinar P. Jónsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.