Sigurbjörg Sigurðardóttir (Skuld)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðrar sem hafa borið nafnið „Sigurbjörg Sigurðardóttir


Sigurbjörg

Sigurbjörg Sigurðardóttir frá Skuld fæddist 2. febrúar 1917 og lést í Reykjavík 4. apríl 1992.
Eiginmaður hennar var Guðmundur J. Gíslason múrari, fæddur í Reykjavík 28. júní 1915.

Frekari umfjöllun

Sigurbjörg Sigurðardóttir frá Skuld við Vestmannabraut 40, húsfreyja í Reykjavík fæddist þar 2. febrúar 1917 og lést 4. apríl 1992.
Foreldrar hennar voru Sigurður Pétur Oddsson útgerðarmaður í Skuld og k.h. Ingunn Jónasdóttir húsfreyja.
Foreldrar Sigurðar voru Oddur bóndi á Rauðafelli u. Eyjafjöllum, Krossi í Landeyjum og Heiði á Rangárvöllum, f. 7. sept. 1842 á Hrútafelli u. Eyjafjöllum, d. 16. nóv. 1922 á Heiði, Péturs bóndi á Hrútafelli Oddssonar og konu Péturs, Valgerðar húsfreyja, f. 7. jan. 1809, d. 29. apríl 1876, Hróbjarts bónda í Berjanesi u. Eyjafjöllum, f. 1769, d. 27. júní 1824, Björnssonar. Móðir Sigurðar Péturs og f.k. Odds var Sigríður húsfreyja á Heiði á Rangárvöllum, f. 5. júlí 1840, d. 27. febr. 1885, Árna bónda í Skálakoti, f. 9. ágúst 1798, d. 5. ágúst 1864, Sveinssonar og konu Árna bónda, Guðfinnu húsfreyju, f. 3. okt. 1806, d. 8. maí 1882, Sveins bónda á Ytri-Sólheimum í Mýrdal, f. 1761, d. 17. okt. 1845, Alexanderssonar.
Foreldrar Ingunnar í Skuld voru Jónas bóndi á Helluvaði á Rangárvöllum, f. 20. sept. 1862 í Eystrihól, d. 15. júní 1924, Ingvars bónda á Valstrýtu í Fljótshlíð, Ártúnum og síðar á Eystrihóli í Landeyjum, formanns við Landeyjasand, f. 28. ágúst 1824 á Galtalæk á Landi, d. 12. apríl 1875, drukknaði í lendingu á Skúmsstaðafjöru, Runólfssonar og konu Ingvars, Kristínar húsfreyju, f. 8. júlí 1822, d. 22. des. 1914, Sigurðar bónda í Ártúnum, f. 1791, d. 28. maí 1866 í Ártúnum, Þorsteinssonar.
Móðir Ingunnar og kona (6. jan. 1882) Jónasar var Elín húsfreyja, f. 10. nóvember 1856, d. 12. apríl 1911, Jóns bónda á Oddsstöðum í Eyjum, f. 1808, d. 6. júní 1866, Þorgeirssonar og konu Jóns, Margrétar húsfreyju, f. 16. janúar 1832, d. 15. febrúar 1919, Halldórs bónda í Steinum u. Eyjafjöllum, Eiríkssonar.

Börn Ingunnar og Sigurðar:
1. Jónas Sigurðsson, f. 29. marz 1907, d. 4. janúar 1980, skipstjóri, húsvörður Gagnfræðaskólans, kvæntur Guðrúnu Ingvarsdóttur.
2. Þórunn Lovísa Sigurðardóttir húsfreyja, f. 30. ágúst 1908, d. 18. júlí 1979 gift Guðna Grímssyni, útgerðarmanni og skipatjóra
3. Oddur Sigurðsson, f 25. maí 1911, d. 19. nóvember 1979, skipstjóri, kvæntur Magneu Lovísu Magnúsdóttur.
4. Elínborg Sigurðardóttir húsfreyja, f. 25. ágúst 1913, d. 5. nóvember 1993, gift Guðmundi Geir Ólafssyni, verzlunarmanni, búsett á Selfossi.
5. Ólafur Sigurðsson, f. 14. okt. 1915, d. 16. mars 1969, skipstjóri, útgerðarmaður, kvæntur Ástu Kristjánsdóttur Bjartmars, búsett í Vestmannaeyjum.
6. Sigurbjörg Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 2 febr. 1917, d. 4. apríl 1992. Fyrri maður Skafti Þórarinsson. Seinni maður Guðmundur Gíslason.
7. Jónheiður Árný Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 16. jan. 1919, d. 8. nóvember 1986, gift Jóni Sigurðssyni, verzlunarmanni.
8. Stefanía Sigurðardóttir húsfreyja á Akranesi og í Reykjavík, verslunarmaður, aðstoðarmaður tannlæknis, f. 2. júní 1921, d. 18. júlí 2004, gift Guðna Degi Kristjánssyni bakarameistara, síðar Árna Guðmundi Andréssyni.
9. Jóhanna Júlía Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 4 marz 1923, gift Guðmundi Jónssyni, bakarameistara.
10. Sigríður Inga Sigurðardóttir húsfreyja, hótelrekandi í Eyjum, f. 14. apríl 1925, gift Ingólfi Theódórssyni netagerðarmeistara og útgerðarmanni í Eyjum.
11. Jónas Ragnar Sigurðsson, prentari, f. 24. febr. 1928, d. 20. nóvember 2002. Fyrrum sambúðarkona hans Audrey Kathleen Magnússon.

ctr


Fjölskylda Ingunnar og Sigurðar í Skuld 1927.
(Höggið á myndina til að fá nánari skýringu á henni).


ctr


Skuldarfjölskyldan.
Mynd úr Bliki 1961.
Standandi frá vinstri: Stefanía, Ólafur, Sigurbjörg, Oddur, Þórunn Lovísa, Jónas, Elínborg, Jónheiður Árný
Sitjandi frá vinstri: Sigríður Inga, Ingunn Jónasdóttir, Jónas Ragnar, Sigurður Pétur Oddsson, Jóhanna Júlía.

Sigurbjörg var með foreldrum sínum 1934, en farin 1935.
Þau Skafti giftu sig, eignuðust eitt barn. Skafti lést 1936.
Þau Guðmundur giftu sig 1940, eignuðust fjögur börn.
Guðmundur lést 1988 og Sigurbjörg 1992.

I. Maður Sigurbjargar var Skafti Þórarinsson frá Hjaltabakka í A.-Hún., skrifstofumaður í Reykjavík, f. 1. júlí 1908, d. 13. júní 1936. Foreldrar hans voru Þórarinn Jónsson bóndi, alþingismaður, f. 6. febrúar 1870 í Geitagerði, d. 5. september 1944, og kona hans Sigríður Þorvaldsdóttir húsfreyja, f. 10. desember 1876, d. 17. maí 1944.
Barn þeirra:
1. Kolbrún Skafta Skaftadóttir, f. 16. janúar 1937. Maður hennar Hörður Felixson.

II. Maður Sigurbjargar, (10. ágúst 1940), var Guðmundur Jón Gíslason múrari, húsvörður í Reykjavík, f. þar 28. júní 1915, d. 10. maí 1988. Foreldrar hans voru Gísli Jóhannesson frá Seli í Holtum, f. 25. september 1873, d. 23. apríl 1958, og kona hans Stefanía Björnsdóttir frá Þjóðólfshaga í Holtum, húsfreyja, f. 2. apríl 1878, d. 20. mars 1932.
Börn þeirra:
2. Stefanía Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 16. janúar 1941. Maður hennar Ágúst Bergsson.
3. Jóhannes Guðmundsson skipstjóri, f. 15. september 1942, d. 25. maí 2012 á Tælandi. Barnsmæður: Kristín Hjaltadóttir, Þórunn Huld Nielsen, Agnes Pálsdóttir. Fyrrum kona hans Rósa Samúelsdóttir. Fyrrum kona hans Anna Cristina Leite. Kona hans Rungnaphe Prohsaket.
4. Kjartan Þór Guðmundsson vélstjóri, f. 23. ágúst 1948. Kona hans Þórunn Drífa Oddsdóttir.
5. Erna Björk Guðmundsdóttir húsfreyja, hjúkrunarfræðingur, f. 3. ágúst 1952. Maður hennar Ragnar Geir Tryggvason.

Myndir


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.
  • Morgunblaðið. Minning Guðmundar Jóns.
  • Prestþjónustubækur.
  • Ættir Austur-Húnvetninga. Guðmundur Sigurður Jóhannsson og Magnús Björnsson. Mál og mynd 1999.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.