Sigurður Oddsson (Skuld)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Sigurður Oddsson)
Fara í flakk Fara í leit
Sigurður og Ingunn.

Sigurður Pétur Oddsson, Skuld, útvegsbóndi fæddist 28. mars 1880 á Krossi í Landeyjum og lést 10. maí 1945.
Foreldrar Sigurðar voru Oddur bóndi á Rauðafelli u. Eyjafjöllum, Krossi í Landeyjum og Heiði á Rangárvöllum, f. 7. sept. 1842 á Hrútafelli u. Eyjafjöllum, d. 16. nóv. 1922 á Heiði, Péturs bóndi á Hrútafelli Oddssonar og konu Péturs, Valgerðar húsfreyju, f. 7. jan. 1809, d. 29. apríl 1876, Hróbjarts bónda í Berjanesi u. Eyjafjöllum, f. 1769, d. 27. júní 1824, Björnssonar. Móðir Sigurðar Péturs og f.k.h. Odds var Sigríður húsfreyja á Heiði á Rangárvöllum, f. 5. júlí 1840, d. 27. febr. 1885, Árna bónda í Skálakoti, f. 9. ágúst 1798, d. 5. ágúst 1864, Sveinssonar og konu Árna bónda, Guðfinnu húsfreyju, f. 3. okt. 1806, d. 8. maí 1882, Sveins bónda á Ytri-Sólheimum í Mýrdal, f. 1761, d. 17. okt. 1845, Alexanderssonar.

Sigurður flutti til Eyja haustið 1907, var sjómaður meðan heilsan leyfði. Hann var formaður fyrst árið 1910 og 1912, var þá með Kapitólu, gerðist síðan meðeigandi að Baldri og varð skipstjóri á honum 1913, var með hann til 1922. Þá hætti hann formennsku í 4-5 ár, tók aftur við Baldri rétt fyrir 1930 (1927-1929) og var með hann í fáein ár, áður en hann hætti til sjós.
Hann var 36 sumarvertíðir með Þorsteini Jónssyni í Laufási á lúðu- skötu- og snurvoðarveiðum.
Sigurður bjó allan sinn búskap í Skuld að einu ári undanteknu.

I. Kona Sigurðar var Ingunn Jónasdóttir húsfreyja.
Börn Ingunnar og Sigurðar:
1. Jónas Sigurðsson, f. 29. marz 1907, d. 4. janúar 1980, skipstjóri, húsvörður Gagnfræðaskólans, kvæntur Guðrúnu Ingvarsdóttur.
2. Þórunn Lovísa Sigurðardóttir húsfreyja, f. 30. ágúst 1908, d. 18. júlí 1979 gift Guðna Grímssyni, útgerðarmanni og skipatjóra
3. Oddur Sigurðsson, f 25. maí 1911, d. 19. nóvember 1979, skipstjóri, kvæntur Magneu Lovísu Magnúsdóttur.
4. Elínborg Sigurðardóttir húsfreyja, f. 25. ágúst 1913, d. 5. nóvember 1993, gift Guðmundi Geir Ólafssyni, verzlunarmanni, búsett á Selfossi.
5. Ólafur Sigurðsson, f. 14. okt. 1915, d. 16. mars 1969, skipstjóri, útgerðarmaður, kvæntur Ástu Kristjánsdóttur Bjartmars, búsett í Vestmannaeyjum.
6. Sigurbjörg Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 2 febr. 1917, d. 4. apríl 1992. Fyrri maður Skafti Þórarinsson. Seinni maður Guðmundur Gíslason.
7. Jónheiður Árný Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 16. jan. 1919, d. 8. nóvember 1986, gift Jóni Sigurðssyni, verzlunarmanni.
8. Stefanía Sigurðardóttir húsfreyja á Akranesi og í Reykjavík, verslunarmaður, aðstoðarmaður tannlæknis, f. 2. júní 1921, d. 18. júlí 2004, gift Guðna Degi Kristjánssyni bakarameistara, síðar Árna Guðmundi Andréssyni.
9. Jóhanna Júlía Sigurðardóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 4 marz 1923, gift Guðmundi Jónssyni, bakarameistara.
10. Sigríður Inga Sigurðardóttir húsfreyja, hótelrekandi í Eyjum, f. 14. apríl 1925, gift Ingólfi Theódórssyni netagerðarmeistara og útgerðarmanni í Eyjum.
11. Jónas Ragnar Sigurðsson, prentari, f. 24. febr. 1928, d. 20. nóvember 2002. Fyrrum sambúðarkona hans Audrey Kathleen Magnússon.


ctr


Fjölskylda Ingunnar og Sigurðar í Skuld 1927.
(Höggið á myndina til að fá nánari skýringu á henni).


ctr


Skuldarfjölskyldan.
Mynd úr Bliki 1961.
Standandi frá vinstri: Stefanía, Ólafur, Sigurbjörg, Oddur, Þórunn Lovísa, Jónas, Elínborg, Jónheiður Árný
Sitjandi frá vinstri: Sigríður Inga, Ingunn Jónasdóttir, Jónas Ragnar, Sigurður Pétur Oddsson, Jóhanna Júlía.

Myndir


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónustubækur.
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.

  • Skipstjóra- og stýrimannatal. Guðmundur Jakobsson. Ægisútgáfan 1979.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.