Sólrún Sædís Sigurbjörnsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Sólrún Sædís Sigurbjörnsdóttir húsfreyja fæddist 16. ágúst 1944 í Kelduneskoti í Kelduhverfi í N.-Þing.
Foreldrar hennar voru Sigurbjörn Hannesson frá Kelduneskoti, bóndi og bílstjóri, pípulagningamaður þar, f. 4. ágúst 1899, d. 7. maí 1966, og kona hans Ingunn Kristinsdóttir húsfreyja, f. 5. janúar 1913 á Flautafelli í Þistilfirði, d. 25. maí 2002.

Sólrún var með foreldrum sínum í æsku.
Hún fór til Eyja 1961, vann við fiskiðnað.
Þau Hallgrímur giftu sig 1964, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu í fyrstu í Franska spítalanum við Kirkjuveg 20, síðar í Heklu við Hásteinsveg 16.

I. Maður Sólrúnar Sædísar, (11. júlí 1964), er Hallgrímur Óskarsson frá Franska spítalanum, húsa- og húsgagnasmíðameistari, f. 7. júlí 1943.
Börn þeirra:
1. Óðinn Þór Hallgrímsson sjómaður í Reykjavík og á Akranesi, f. 8. janúar 1964. Kona hans Helga Sigurðardóttir.
2. Fanney Ósk Hallgrímsdóttir húsfreyja, verkakona í Eyjum, f. 13. janúar 1965. Maður hennar Guðbjörn Guðmundsson.
3. Sigurbjörn Ófeigur Hallgrímsson húsasmíðameistari í Eyjum, f. 6. desember 1965, d. 27. mars 2009. Fyrrum kona hans Ásdís Sveinjónsdóttir. Sambúðarkona hans Hafdís Óskarsdóttir.
4. Ægir Óskar Hallgrímsson leigubílstjóri í Reykjavík, f. 11. júní 1967. Kona hans Berglind Magnúsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.