Marta Pétursdóttir (Vegbergi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Marta Pétursdóttir frá Selshjáleigu í A-Landeyjum, húsfreyja fæddist 6. apríl 1914 í Voðmúlastaða-Austurhjáleigu þar og lést 27. ágúst 1989 í St. Marys í New South Wales í Ástralíu.
Foreldrar hennar voru Pétur Guðmundsson, síðar bóndi í Stóru-Hildisey í A.-Landeyjum, f. 15. júní 1893 í Voðmúlastaða-Austurhjáleigu þar, d. 13. febrúar 1959 í Reykjavík, og kona hans Soffía Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 3. júlí 1892 á Reykjum í Mosfellssveit, d. 25. mars 1973 á Selfossi.

Börn Soffíu og Péturs - í Eyjum:
1. Marta Pétursdóttir húsfreyja, f. 6. apríl 1914, d. 27. september 1989 í Ástralíu.
2. Jóhanna Pétursdóttir húsfreyja, f. 5. september 1922, d. 8. janúar 1983.
3. Pétur Pétursson sjómaður, múrari, f. 13. september 1924, d. 9. júlí 2016.
4. Geir Grétar Pétursson verkamaður, f. 14. apríl 1937, d. 1. september 2015.

Marta var með foreldrum sínum í æsku, í Selshjáleigu til 1935, flutti til Eyja frá Stóru-Hildisey 1936.
Hún var ráðskona hjá Jóhannesi. Þau bjuggu á Minna-Núpi við Brekastíg 4 og á Vegbergi við Skólaveg 32, í London við Miðstræti 3, síðast á Hásteinsvegi 37 við Gosið 1973, eignuðust tvö börn og Jóhannes hafði eignast átta börn, en sex þeirra á lífi.
Þau fluttu til Soffíu Lillýjar dóttur sinnar í Ástralíu 1973.
Jóhannes lést í Astralíu 1975 og Marta lést þar 1989.

I. Maður Mörtu var Jóhannes Albertsson frá Útibleiksstöðum á Heggstaðanesi í V-Hún., lögregluþjónn, f. 19. nóvember 1899 á Syðri-Kárastöðum á Vatnsnesi í V-Hún., d. 4. febrúar 1975.
Börn þeirra:
7. Sævar Þorbjörn Jóhannesson, rannsóknarlögreglumaður í Reykjavík, f. 8. maí 1938. Kona hans Emma T. Hansen frá Nesi í Austurey, Færeyjum.
8. Soffía Lillý Jóhannesdóttir, húsfreyja í St. Marys í New South Wales, Ástralíu, f. 20. júní 1940, d. 9. júlí 2016. Maður hennar Lúðvík Sigurðsson frá Sunnuhvoli á Djúpavogi.
Börn Jóhannesar og fyrri konu hans Kristínar Sigmundsdóttur:
1. Jóhannes Albert Jóhannesson matsveinn í Reykjavík, f. 21. júlí 1925 í Litlakoti, d. 5. febrúar 2001. Kona hans Brynja Óskarsdóttir Hendriksen frá Færeyjum.
2. Grettir Jóhannesson bóndi, f. 11. febrúar 1927 í Vegg. Kona hans Málfríður Fanney Egilsdóttir frá Skarði í Djúpárhreppi.
3. Gréta Jóhannesdóttir húsfreyja, kaupmaður, f. 8. janúar 1929 í Vegg, d. 12. mars 2002. Maður hennar Haraldur Guðmundsson frá Ólafsvík.
4. Elínborg Jóhannesdóttir Sielski í Kaliforníu, húsfreyja, f. 27. apríl 1930 í Vegg, d. 21. október 2023. Maður hennar Henry Sielski jr. frá San Antonio í Texas.
5. Jóhanna Maggý Jóhannesdóttir húsfreyja, f. 29. maí 1931 í Vegg, d. 14. apríl 2020. Maður hennar Arnþór Ingólfsson frá Hauksstöðum, Vopnafirði, látinn.
6. Ragnar Sigurjón Jóhannesson sjómaður, f. 30. júní 1932 í Vegg, d. 10. desember 2020. Kona hans Hólmfríður Sigurðardóttir frá Þrúðvangi.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.