Geir Grétar Pétursson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Geir Grétar Pétursson.

Geir Grétar Pétursson sjómaður, útgerðarmaður, fiskverkandi, verkamaður fæddist 14. apríl 1937 í Stóru-Hildisey í A-Landeyjum og lést 1. september 2015 á Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi.
Foreldrar hans voru Pétur Guðmundsson bóndi, f. 15. júní 1893 í Vomúlastaða-Austurhjáleigu, d. 13. febrúar 1959, og kona hans Soffía Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 3. júlí 1892 á Reykjum í Mosfellssveit, d. 25. mars 1973.

Börn Soffíu og Péturs - í Eyjum:
1. Marta Pétursdóttir húsfreyja, f. 6. apríl 1914, d. 27. september 1989 í Ástralíu.
2. Jóhanna Pétursdóttir húsfreyja, f. 5. september 1922, d. 8. janúar 1983.
3. Pétur Pétursson sjómaður, múrari, f. 13. september 1924, d. 9. júlí 2016.
4. Geir Grétar Pétursson, f. 14. apríl 1937, d. 1. september 2015.

Geir hóf ungur sjósókn í Eyjum, réri í fyrstu með Guðjóni í Hlíðardal. Hann var um skeið í útgerð og rak hellugerð ásamt öðrum, vann síðar verkamannsstörf.
Geir var einn af stofnendum AA-samtakanna í Eyjum og var liðtækur félagi.
Þau Kristín Anna hófu búskap í Reykjavík um 1957, eignuðust sex börn.
Þau fluttu til Eyja 1963, bjuggu í fyrstu í Bergholti við Vestmannabraut 67, þá á Hilmisgötu 5 og við Gos 1973.
Þau bjuggu á Stokkseyri í tvö ár, snéru þá til Eyja og bjuggu við Miðstræti 11 til 1980, er þau fluttu til Þorlákshafnar og síðan til Selfoss. Þau bjuggu þar síðast á Fossheið 62.
Kristín Anna lést 2009 og Geir Grétar 2015.

I. Kona Geirs Grétars var Kristín Anna Baldvinsdóttir frá Reykjavík, húsfreyja, fiskiðnaðarkona, dagmóðir, f. 20. ágúst 1938, d. 26. ágúst 2009.
Börn þeirra:
1. Valur Smári Geirsson sjómaður, f. 18. september 1957, fórst með Hellisey VE 11. mars 1984. Sambúðarkona hans Linda Sigurborg Aðalbjörnsdóttir.
2. Grétar Pétur Geirsson bókari, f. 24. september 1958. Barnamóðir hans Guðrún Guðfinnsdóttir. Fyrrum sambúðarkona hans Laufey Þ. Ólafsdóttir . Sambúðarkona Brynhildur Fjölnisdóttir.
3. Steindór Guðberg Geirsson sjómaður, f. 26. desember 1961, drukknaði, er hann tók út af togaranum Klakki 1. október 1978.
4. Heimir Freyr Geirsson sjómaður, f. 1. júní 1963. Fyrrum sambúðarkona hans Eygló Guðmundsdóttir. Sambúðarkona hans Margrét Þ. Sverrisdóttir.
5. Sævar Helgi Geirsson umsjónarmaður, f. 18. október 1966. Fyrrum sambúðarkona Jóhanna B. Halldórsdóttir.
6. Anna Lea Geirsdóttir starfsmaður á sjúkrahúsi, f. 13. febrúar 1980. Barnsfaðir hennar Alex Þorsteinsson.
Barn Önnu Kristínar fyrir hjónaband:
7. Sveinn Guðfinnur Ragnarsson verkamaður, f. 4. janúar 1956, d. 26. febrúar 2003. Barnsmæður hans Jóhanna Ósk Kristjánsdóttir, Sjöfn Garðarsdóttir og Sigríður Bergdís Magnúsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íslendingabók.is.
  • Morgunblaðið 12. september 2015. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.