Elínborg Jóhannesdóttir (Vegg)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Elínborg Jóhannesdóttir.

Elínborg Jóhannesdóttir frá Vegg, húsfreyja í Kaliforníu fæddist 27. apríl 1930 og lést 21. október 2023.
Foreldrar hennar voru Jóhannes J. Albersson lögregluþjónn, f. 19. nóvember 1899 á Syðri-Kárastöðum í V.-Hún., d. 4. febrúar 1975 í Ástralíu, og fyrri kona hans Kristín Sigmundsdóttir frá Breiðuhlíð í Mýrdal, húsfreyja, f. 2. janúar 1894, d. 1. júlí 1936.

Börn Kristínar og Jóhannesar:
1. Drengur, f. 15. maí 1923 að Hamraendum, d. 2. júlí 1923.
2. Jóhannes Albert Jóhannesson, f. 25. ágúst 1924 á Hamraendum, d. 26. október 1924.
3. Jóhannes Albert Jóhannesson matsveinn í Reykjavík, f. 21. júlí 1925 í Litlakoti, d. 5. febrúar 2001. Kona hans Brynja Óskarsdóttir Hendriksen frá Færeyjum.
4. Grettir Jóhannesson bóndi, f. 11. febrúar 1927 í Vegg. Kona hans Málfríður Fanney Egilsdóttir frá Skarði í Djúpárhreppi.
5. Gréta Jóhannesdóttir húsfreyja, kaupmaður, f. 8. janúar 1929 í Vegg, d. 12. mars 2002. Maður hennar Haraldur Guðmundsson frá Ólafsvík.
6. Elínborg Jóhannesdóttir Sielski í Kaliforníu, húsfreyja, f. 27. apríl 1930 í Vegg, d. 21. október 2023. Maður hennar Henry Sielski jr. frá San Antonio í Texas.
7. Jóhanna Maggý Jóhannesdóttir húsfreyja, f. 29. maí 1931 í Vegg, d. 14. apríl 2020. Maður hennar Arnþór Ingólfsson frá Hauksstöðum, Vopnafirði
8. Ragnar Sigurjón Jóhannesson sjómaður, f. 30. júní 1932 í Vegg, d. 10. desember 2020. Kona hans Hólmfríður Sigurðardóttir frá Þrúðvangi.
Börn Jóhannesar og Mörtu Pétursdóttur síðari konu hans:
9. Sævar Þorbjörn Jóhannesson, rannsóknarlögreglumaður í Reykjavík, f. 8. maí 1938. Kona hans Emma T. Hansen frá Nesi í Austurey, Færeyjum.
10. Soffía Lillý Jóhannesdóttir, húsfreyja í St. Marys í New South Wales, Ástarlíu, f. 20. júní 1940, d. 9. júlí 2016. Maður hennar Lúðvík Sigurðsson frá Sunnuhvoli á Djúpavogi.

Elínborg var með foreldrum sínum, en móðir hennar lést, er Elínborg var á 6. árinu. Hún var með föður sínum og Mörtu síðari konu hans.
Elínborg starfaði á barnaheimili í Kaliforníu.
Þau Guðmundur giftu sig, eignuðust tvö börn, en skildu. Þau Henry giftu sig, eignuðust tvö börn, bjuggu í Barstow í Kaliforníu.
Elínborg lést 2023.

I. Maður hennar var Guðmundur Þórarinsson íþróttakennari, f. 24. mars 1924, d. 29. nóvember 1996. Foreldrar hans voru Þórarinn Magnússon, skósmiður, f. 29. mars 1895, d. 18. mars 1982, og Ingibjörg Guðmundsdóttir, f. 5. janúar 1900, d. 20. júní 1989.
Börn þeirra:
1. Jóhannes Þór Guðmundsson, f. 20. maí 1949 á Miðstræti 3. Kona hans Erla L. Guðjónsdóttir.
2. Kristín Ingibjörg Guðmundsdóttir, húsfreyja, f. 2. ágúst 1951. Maður hennar Viggó Hagalínsson.

II. Maður Elínborgar Henry Sielski jr. frá San Antonio í Texas.
Börn þeirra:
3. Mark Sielski, f. 18. maí 1963.
4. Eric Sielski, f. 18. janúar 1966.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.