Guðmundur Jóhannsson (rafvirki)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðmundur Jóhannsson rafvirki, framkvæmdastjóri fæddist 29. september 1957 í Eyjum.
Foreldrar hans voru Jóhann Guðmundur Ólafsson sjómaður, verkstjóri, f. 15. apríl 1935, og kona hans Guðrún Steinsdóttir frá Múla, húsfreyja, f. 22. september 1935, d. 7. október 2017.

Guðmundur var með foreldrum sínum.
Hann lærði rafvirkjun í Iðnskólanum í Eyjum, lauk sveinsprófi 1977. Meistari var Þórarinn Sigurðsson.
Hann vann hjá Geisla hf. 1974-1985, hjá Rafvirkni sf. 1985-1986, varð framkvæmdastjóri Eyjaíss ehf..
Þau Margrét giftu sig 1978, eignuðust þrjú börn. Þau búa við Foldahraun.

I. Kona Guðmundar, (25. mars 1978), er Margrét Kjartansdóttir húsfreyja, leikskólakennari, f. 7. janúar 1959 í Reykjavík. Foreldrar hennar Kjartan Reynir Zophóníasson rennismiður og bifvélavirki í Kópavogi, síðast í Hafnarfirði, f. 20. júlí 1930 á Stóru-Býlu í Innri-Akraneshreppi, d. 4. febrúar 2016, og kona hans Stella Hjaltadóttir húsfreyja, gangavörður, f. 31. mars 1932 í Reykjavík.
Börn þeirra:
1. Jóhann Ólafur Guðmundsson, f. 1. júlí 1977. Hann rekur brugghúsið Brothers Brewery í Eyjum. Kona hans Valgerður Þorsteinsdóttir.
2. Davíð Örn Guðmundsson bílasmiður í Kópavogi, f. 10. apríl 1983. Kona hans Anna Brynja Valmundsdóttir.
3. Rakel Ósk Guðmundsdóttir fötlunarfræðingur, kennari við Grunnskóla Vestmannaeyja, f. 23. febrúar 1989. Maður hennar Hannes Kristinn Eiríksson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Guðmundur.
  • Íslendingabók.
  • Prestþjónustubækur.
  • Rafvirkjatal. Ritstjóri: Þorsteinn Jónsson, Gunnar Guðmundsson og fleiri. Þjóðsaga hf. 1995.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.