Jóhann Ólafsson (Múla)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Jóhann Guðmundur Ólafsson frá Siglufirði, sjómaður, verkstjóri fæddist 15. apríl 1935.
Foreldrar hans voru Ólafur Sölvi Bjarnason verkamaður, f. 10. ágúst 1906, d. 2. maí 1958, og Guðmunda Solveig Jóhannsdóttir, f. 26. ágúst 1906, d. 7. febrúar 1982.

Jóhann Guðmundur var sjómaður, var á Sjöfn, á Stíganda í 12 ár. Síðan var hann verkstjóri í Fiskiðjunni.
Þau Guðrún giftu sig 1955, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Steinholti 1957, í Múla 1960. Þau byggðu hús á Strembu og bjuggu þar um skeið, síðan á Faxastíg 49, en síðast bjuggu þau á Áshamri 45.
Guðrún lést 2017.
Jóhann býr við Sólhlíð 19.

I. Kona Jóhanns Guðmundar, (30. desember 1955), var Guðrún Steinsdóttir frá Múla, húsfreyja, verslunarmaður, starfsmaður Heilsugæslunnar í Eyjum, f. 22. september 1935, d. 7. október 2017.
Börn þeirra:
1. Þorgerður Jóhannsdóttir, skrifstofustjóri, f. 18. nóvember 1955. Maður hennar er Magnús Kristinn Sigurðsson.
2. Guðmundur Jóhannsson, rafvirki í Ísstöðinni, f. 29. september 1957. Kona hans er Margrét Kjartansdóttir.
3. Ómar Jóhannsson framkvæmdastjóri í Reykjavík, f. 20. september 1960. Kona hans er Elín Lárusdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1972.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1979.
  • Íslendingabók.is.
  • Jóhann Guðmundur.
  • Morgunblaðið 21. október 2017. Minning Guðrúnar.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.