Margrét Kjartansdóttir (Foldahrauni)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Margrét Kjartansdóttir úr Reykjavík, húsfreyja, leikskólakennari fæddist þar 7. janúar 1959.
Foreldrar hennar Kjartan Reynir Zophóníasson rennismiður og bifvélavirki í Kópavogi, síðast í Hafnarfirði, f. 20. júlí 1930 á Stóru-Býlu í Innri-Akraneshreppi, d. 4. febrúar 2016, og kona hans Stella Hjaltadóttir húsfreyja, gangavörður, f. 31. mars 1932 í Reykjavík.

Margrét nam við Háskólann á Akureyri í fjarnámi, varð leikskólakennari.
Hún hefur unnið við leikskólakennslu.
Margrét flutti til Eyja 1976.
Þau Guðmundur giftu sig 1978, eignuðust þrjú börn. Þau búa við Foldahraun 30.

I. Maður Margrétar, (25. mars 1978), er Guðmundur Jóhannsson rafvirki, framkvæmdastjóri, f. 29. september 1957 í Eyjum.
Börn þeirra:
1. Jóhann Ólafur Guðmundsson, f. 1. júlí 1977. Hann rekur brugghúsið Brothers Brewery í Eyjum. Kona hans Valgerður Þorsteinsdóttir.
2. Davíð Örn Guðmundsson bílasmiður í Kópavogi, f. 10. apríl 1983. Kona hans Anna Brynja Valmundsdóttir.
3. Rakel Ósk Guðmundsdóttir fötlunarfræðingur, kennari við Grunnskóla Vestmannaeyja, f. 23. febrúar 1989. Maður hennar Hannes Kristinn Eiríksson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.