Þráinn Veigu Óskarsson (Hrafnabjörgum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Þráinn Veigu Óskarsson frá Hrafnabjörgum, húsasmíðameistari í Kópavogi fæddist 1. nóvember 1953.
Foreldrar hans voru Óskar Þórarinsson húsasmíðameistari, f. 28. júní 1910 á Norðfirði, d. 17. maí 1982, og kona hans Solveig Sigurðardóttir húsfreyja, f. 19. desember 1923 á Blómsturvöllum, d. 7. desember 1994.

Börn Solveigar og Óskars:
1. Andvana fædd stúlka 28. júlí 1942.
2. Erla Óskarsdóttir húsfreyja á Akranesi, síðar verslunarmaður, sjúkrahússstarfsmaður í Reykjavík, f. 22. desember 1943. Fyrrum maður hennar er Adólf Ásgrímsson rafvirkjameistari, rafmagnstæknifræðingur, f. 12. júní 1944.
3. Sigurbjörg Óskarsdóttir húsfreyja, ræstitæknir, f. 20. júní 1945. Maður hennar er Sigurður Óskarsson frá Hvassafelli, húsasmíðameistari, kafari, eftirlitsmaður, stjórnarformaður, útgerðarmaður, kennari, tónlistarmaður, f. 24. maí 1944.
4. Þórhildur Óskarsdóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 15. mars 1947. Maður hennar Jónas Kristinn Bergsteinsson frá Múla, rafverktaki, f. 24. ágúst 1948.
5. Ólafur Óskarsson rennismíðameistari, bifreiðastjóri, f. 23. október 1948. Kona hans er Jóna Jónsdóttir húsfreyja, læknafulltrúi frá Gerði.
6. Óskar Veigu Óskarsson rafvirki, svæðissölustjóri hjá Marel, f. 18. september 1950. Barnsmóðir hans er Sigríður Gísladóttir. Kona hans var Bergþóra Jónsdóttir húsfreyja, fiskverkakona, f. 24. ágúst 1953, d. 13. ágúst 2012.
7. Þráinn Veigu Óskarsson húsasmíðameistari í Kópavogi, f. 1. nóvember 1953. Kona hans er Guðný Júlíana Garðarsdóttir húsfreyja, sölumaður.
8. Dagmar Óskarsdóttir húsfreyja í Kópavogi, sjúkraliði, f. 3. júní 1962. Barnsfaðir hennar Egill Þór Steinþórsson. Fyrrum maður hennar Högni Þór Hilmisson. Sambýlismaður hennar er Jón Berg Torfason þroskaþjálfi.
9. Hafdís Óskarsdóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 15. desember 1963. Maður hennar var Sigurjón Kristinsson. Sambúðarmaður Hafdísar var Sigurbjörn Ófeigur Hallgrímsson, látinn. Maður Hafdísar er Hermann Smárason, f. 12. mars 1959.

Þráinn var með foreldrum sínum í æsku.
Hann nam húsasmíði hjá Þórðunum í Eyjum. Þráinn lauk sveinsprófi 1985 og hefur hefur unnið við iðn sína.
Þau Guðný Júlíana giftu sig 1983, eignuðust fjögur börn. Þau búa í Kópavogi.

ctr
Þráinn Óskarsson, Guðný og börn þeirra.
Fremri röð: Ívar Örn, Kári Þráinn.
Aftari röð: Kristín Erla, Guðný Júlíana, Þráinn Davíð og Þráinn.

I. Kona Þráins, (1. nóvember 1983), er Guðný Júlíana Garðarsdóttir húsfreyja, sölumaður, f. 15. desember 1959. Foreldrar hennar Garðar Bjarnason starfsmaður Rafmagnsveitu Reykjavíkur, f. 3. júní 1932, d. 22. desember 1991 og kona hans Jóhanna Sigríður Júlíusdóttir húsfreyja, f. 31. júlí 1935.
Börn þeirra:
1. Kristín Erla Þráinsdóttir fornleifafræðingur, náms- og starfsráðgjafi, f. 10. nóvember 1980 í Eyjum. Maður hennar Trausti Ómar Thorberg Sigurðsson.
2. Ívar Örn Þráinsson viðskiptalögfræðingur, f. 10. ágúst 1984 í Reykjavík. Kona hans Þórunn Unnur Birgisdóttir.
3. Kári Þráinsson framkvæmdastjóri, f. 14. desember 1986 í Reykjavík. Kona hans Birna Magnea Bogadóttir Sigurðsonar.
4. Þráinn Davíð Þráinsson lagermaður, f. 10. desember 1993 í Reykjavík. Ókvæntur.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.