Óskar Þórarinsson (Hrafnabjörgum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Óskar Þórarinsson.

Óskar Þórarinsson húsasmíðameistari á Hrafnabjörgum fæddist 28. júní 1910 á Norðfirði og lést 17. maí 1982.
Foreldrar hans voru Þórarinn Finnsson vélstjóri, innheimtumaður, f. 8. maí 1880 á Tunguhóli í Fáskrúðsfirði, d. 25. september 1960 í Reykjavík, og fyrri kona hans Kristín Hildur Einarsdóttir húsfreyja, ráðskona, f. 9. júní 1884 á Seyðisfirði, d. 21. júní 1959 í Reykjavík.

Systkini Óskars voru:
1. Stúlka, f. 15. febrúar 1909, d. 8. mars 1909.
2. Ásta Aðalheiður Þórarinsdóttir húsfreyja, f. 7. apríl 1912 í Fagurhól, d. 8. október 1985 á Selfossi.
Hálfsystkini Óskars:
3. Magnea Lilja Þórarinsdóttir húsfreyja, f. 17. september 1918 í Reykjavík, d. 8. september 2003 í Reykjavík.
4. Jónína Matthildur Jónsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 23. janúar 1917 á Norðfirði, d. 29. janúar 2013.
5. Ólafur Indriðason verkstjóri í Reykjavík, f. 4. október 1921 í Áreyjum í Reyðarfirði, d. 16. október 1986.

ctr
Kristín Hildur og börn hennar Óskar og Ásta.

Óskar kom frá Norðfirði til Eyja með foreldrum sínum 1912 og var með þeim í Fagurhól við fæðingu Ástu Aðalheiðar á því ári. Þau fluttust aftur á Norðfjörð 1913.
Hann var hjá ættingjum í Stefánshúsi á Seyðisfirði 1920, með ráðskonunni móður sinni í Áreyjum í Reyðarfirði 1927, var staddur í Reykjavík 1930.
Óskar var sjómaður í Hlíð 1940.
Sólveig ól andvana barn þeirra á Brekastíg 23 1942. Þau Solveig voru í Heiðardal við fæðingu Erlu 1943 og við fæðingu Sigurbjargar 1945. Í lok ársins bjuggu þau í Franska spítalanum (Kirkjuvegi 20). Þau keyptu Hrafnabjörg og voru þar við fæðingu Þórhildar 1947 og síðan fæddust þar 5 börn þeirra.
Þau reistu hæð á Hrafnabjörgin og bjuggu þar meðan öll börnin voru heima, en fluttust síðan á Foldahraun og þá á Faxastíg, en að lokum á Brekastíg 23.
Óskar lést 1982. Sólveig varð fyrir áfalli og dvaldi á Sjúkrahúsinu síðasta ár sitt. Hún lést 1994.

ctr
Sólveig, Óskar og börn

Kona Óskars, (24. desember 1942), var Sólveig Sigurðardóttir húsfreyja, f. 19. desember 1923, d. 7. desember 1994.
Börn þeirra voru.
1. Andvana fædd stúlka 28. júlí 1942.
2. Erla Óskarsdóttir húsfreyja á Akranesi, síðar verslunarmaður, sjúkrahússtarfsmaður í Reykjavík, f. 22. desember 1943. Maður hennar er Adólf Ásgrímsson rafvirkjameistari, rafmagnstæknifræðingur, f. 12. júní 1944.
3. Sigurbjörg Óskarsdóttir húsfreyja, f. 20. júní 1945. Maður hennar er Sigurður Óskarsson frá Hvassafelli, smiður, kafari, f. 24. maí 1944.
4. Þórhildur Óskarsdóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 15. mars 1947. Maður hennar Jónas Kristinn Bergsteinsson frá Múla rafverktaki, f. 24. ágúst 1948.
5. Ólafur Óskarsson rennismíðameistari, bifreiðastjóri, f. 23. október 1948. Kona hans er Jóna Jónsdóttir húsfreyja, læknafulltrúi frá Gerði, f. 5. maí 1950.
6. Óskar Veigu Óskarsson rafvirki, svæðissölustjóri hjá Marel, f. 18. september 1950. Kona hans var Bergþóra Jónsdóttir húsfreyja, fiskverkakona, f. 24. ágúst 1953, d. 13. ágúst 2012.
7. Þráinn Veigu Óskarsson húsasmíðameistari í Kópavogi, f. 1. nóvember 1953. Kona hans er Guðný Júlíana Garðarsdóttir húsfreyja, sölumaður, f. 15. desember 1959.
8. Dagmar Óskarsdóttir húsfreyja í Kópavogi, sjúkraliði, f. 3. júní 1962. Sambýlismaður hennar er Jón Berg Torfason þroskaþjálfi, f. 14. mars 1971.
9. Hafdís Óskarsdóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 15. desember 1963. Maður hennar var Sigurjón Kristinsson læknir, f. 16. mars 1964. Sambúðarmaður Hafdísar var Sigurbjörn Ófeigur Hallgrímsson|, f. 6. desember 1965, d. 27. mars 2009. Maður Hafdísar er Hermann Smárason, f. 12. mars 1959.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.