Þorvaldur Waagfjörð (Garðhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Þorvaldur Waagfjörð frá Garðhúsum, sjómaður, vélstjóri fæddist 3. júní 1952 og lést 16. september 1979 af slysförum.
Foreldrar hans voru Jón Waagfjörð yngri, bakari, málari, f. 24. febrúar 1920, d. 17. september 2005, og kona hans Bertha María Grímsdóttir Waagfjörð húsfreyja, kaupmaður, f. 13. febrúar 1926.

Barn Jóns Waagfjörðs fyrir hjónaband:
1. Már Viktor Jónsson bifvélavirki, f. 5. desember 1940. Kona hans var Þyrí Hólm, látin. Sambýliskona hans var Sonja Ólafsdóttir, látin.
Börn Jóns og Berthu:
2. Halldór Waagfjörð vélstjóri, vélvirkjameistari, útgerðarmaður, f. 2. maí 1947 í Reykjavík. Kona hans var Ásta Þorvaldsdóttir, látin.
3. Kristinn Waagfjörð bakari, múrarameistari í Mosfellsbæ, f. 27. nóvember 1949 í Reykjavík. Kona hans er Hjördís Sigmundsdóttir, og Önnu Hörleifsdóttur frá Skáholti.
4. Þorvaldur Waagfjörð sjómaður, f. 3. júní 1952, d. 16. september 1979 af slysförum. Kona hans, (skildu), var Sigríður Tómasdóttir.
5. Grímur Rúnar Waagfjörð rafvirki í Hafnarfirði, f. 9. apríl 1956. Kona hans er Helga Gunnarsdóttir.
6. Þorsteinn Waagfjörð vélstjóri, frystivélvirki í Garðabæ, rekur fyrirtækið Frystitækni ehf., f. 27. apríl 1962. Kona hans er Sigrún Snædal Logadóttir.
7. Rósa María Waagfjörð húsfreyja í Reykjavík, f. 29. nóvember 1966. Sambýlismaður hennar var Hreiðar H. Hreiðarsson. Sambýlismaður er Einar Ingason.

Þorvaldur ólst upp með fjölskyldu sinni, var með henni í Garðhúsum 1972. Hann var vélstjóri og var á leið til Seyðisfjarðar 1979 til að verða vélstjóri á v/b Gullver, er hann fórst í bílslysi á Fjarðarheiði.
Hann eignaðist dóttur með Kristínu Ósk 1971.
Þau Sigríður eignuðust eitt barn, en skildu.

I. Barnsmóðir Þorvaldar var Kristín Ósk Kristinsdóttir frá Laugardal, f. 14. desember 1952 í Laugardal.
Barn þeirra:
1. Alda Ragna Þorvaldsdóttir stuðningsfulltrúi í Hafnarfirði, f. 3. júlí 1971.

II. Barnsmóðir hans var Aðalheiður Kristinsdóttir, f. 10. júní 1954.
Barn þeirra:
2. Kristinn Bjarni Þorvaldsson pípulagningamaður, f. 24. desember 1972.

III. Kona Þorvaldar, (skildu), var Sigríður Tómasdóttir húsfreyja.
Barn þeirra:
3. Tómas Þorvaldsson Waagfjörð, f. 9. júlí 1976 í Eyjum, d. 3. október 2022 á Ólafsfirði.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.