Þórhallur Sigjónsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Þórhallur Sigjónsson vörubifreiðastjóri í Reykjavík fæddist 11. maí 1919 á Lögbergi og lést 17. júlí 1993.
Foreldrar hans voru Sigjón Halldórsson vélstjóri og trésmiður frá Bakka á Mýrum í A-Skaft., f. 31. júlí 1888, d. 19. apríl 1931 og kona hans Sigrún Runólfsdóttir frá Króki í Flóa, húsfreyja, f. 26. maí 1889, d. 11. ágúst 1991. Fósturforeldrar hans voru Kristín Þórðardóttir og Guðmundur Guðlaugsson bændur í Hallgeirsey í A-Landeyjum. Guðmundur var bróðir Hróbjarts Guðlaugssonar, (Hróa) í Landlyst.
Kristín lést 1931 og annaðist Guðmundur og Guðríður Jónasdóttir húsfreyja, síðari kona hans, uppeldi systkinanna.

Börn Sigjóns og Sigrúnar:
1. Þórunn Aðalheiður Sigjónsdóttir húsfreyja, f. 27. febrúar 1913 á Skaftafelli, d. 25. júlí 1998. Maður hennar var Svavar Þórðarson.
2. Bragi Sigjónsson vélstjóri, f. 27. júní 1914 á Skaftafelli, d. 25. september 1985. Kona hans var Rósa (Rósamunda) Einarsdóttir frá Seyðisfirði.
3. Sigurjón Sigjónsson, f. 16. ágúst 1915 á Eyjarhólum, d. 31. maí 1916.
4. Jón Garðar Sigjónsson vélstjóri, útgerðarmaður, hafnsögumaður á Höfn í Hornafirði, f. 18. október 1916 á Lögbergi, d. 15. febrúar 2006. Kona hans var Guðfinna Bjarnadóttir.
5. Tryggvi Sigjónsson útgerðarmaður á Höfn í Hornafirði, f. 10. apríl 1918 á Lögbergi, d. 26. janúar 2000. Kona hans var Herdís Ragna Clausen.
6. Þórhallur Sigjónsson vörubifreiðastjóri í Reykjavík, f. 11. maí 1919 á Lögbergi, d. 17. júlí 1993. Kona hans var Ólöf Hannesdóttir.
7. Friðrik Sigjónsson, f. 22. október 1920 í Héðinshöfða, drukknaði 23. desember 1944.
8. Halldór Sigjónsson, f. 31. desember 1922, d. 25. júní 1930.
9. Guðríður Sigjónsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 26. febrúar 1924 í Héðinshöfða, d. 31. ágúst 1987. Maður hennar var Jón Karlsson.
10. Kristbjörg Sigjónsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 26. maí 1925 í Héðinshöfða. Maður hennar var Gísli Tómasson.
11. Gústaf Sigjónsson vélstjóri, skipstjóri, bifreiðstjóri, f. 22. janúar 1927 í Héðinshöfða. Kona hans er Guðbjörg Halldóra Einarsdóttir.
12. Guðmundur Sigjónsson vélvirki í Eyjum, f. 22. mars 1928 í Héðinshöfða, d. 7. nóvember 2009. Kona hans var Jónína Þuríður Guðnadóttir.

Fóstursystkini Þórhalls og Guðríðar í Hallgeirsey voru:
Börn hjónanna:
1. Guðlaugur Grétar Guðmundsson, f. 9. ágúst 1934, d. 13. júlí 1937.
2. Jónas Ragnar Guðmundsson prentari í Reykjavík, f. 28. september 1935.
Fósturbörn þeirra auk Guðríðar og Þórhalls:
3. Gísli Halldór Jónasson skipstjóri, f. 23. september 1933, kvæntur Viktoríu Karlsdóttur.
4. Magnús Stefánsson skipstjóri, f. 4. desember 1937. Fyrri kona hans var Hrefna Sighvatsdóttir.

Þórhallur var með fjölskyldu sinni til 9 ára aldurs, en var þá sendur í fóstur ásamt Guðríði systur sinni. Sigjón faðir hans hafði veikst af Spænsku veikinni 1918 og stríddi lengi við afleiðingar hennar. Það leiddi til þess, að þau Sigrún urðu að koma 5 börnum sínum í fóstur. Tvö þeirra fóru í fóstur í Landeyjar og þrjú á Mýrar í A-Skaft.

Þórhallur stundaði sjómennsku og siglingar fyrr á árum, en lengst af var hann bílstjóri á Vörubílastöð Þróttar og starfsmaður Reykjavíkurborgar hjá gatnamálastjóra, en um skeið var hann bifreiðastjóri á Vífilsstaðaspítala. Þau Ólöf eignuðust 3 börn. Þórhallur lést 1993.

Kona Þórhalls var Ólöf Hannesdóttir húsfreyja, f. 21. september 1922 , d. 26. október 2017. Foreldrar hennar voru Hannes Ólason verkstjóri, f. 24. júlí 1884, d. 16. apríl 1970, og kona hans Valgerður Björnsdóttir húsfreyja, f. 1. júní 1895, d. 6. apríl 1989.
Börn þeirra:
1. Edda Friðrika Þórhallsdóttir, f. 12. mars 1945. Hún er búsett í Kaliforníu. Maður hennar William C. Atwell er látinn.
2. Birna Kristín Þórhallsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 12. ágúst 1946. Maður hennar var Gylfi Harðarson vélstjóri.
3. Sigjón Rúnar Gylfi Þórhallsson vélstjóri í Eyjum og Ólafsvík, f. 12. desember 1947. Kona hans er Oddný Ólafsdóttir frá Hvanneyri, húsfreyja, f. 20. desember 1949.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.