Guðríður Sigjónsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Guðríður Sigjónsdóttir frá Héðinshöfða, húsfreyja í Reykjavík, fæddist 26. febrúar 1924 og lést 31. ágúst 1987.
Foreldrar hennar voru Sigjón Halldórsson vélstjóri og trésmiður frá Bakka á Mýrum í A-Skaft., f. 31. júlí 1888, d. 19. apríl 1931 og kona hans Sigrún Runólfsdóttir frá Króki í Flóa, húsfreyja, f. 26. maí 1889, d. 11. ágúst 1991.
Fósturforeldrar Guðríðar voru Kristín Þórðardóttir og Guðmundur Guðlaugsson bændur í Hallgeirsey í A-Landeyjum. Guðmundur var bróðir Hróbjarts Guðlaugssonar, (Hróa) í Landlyst.
Kristín lést 1931 og annaðist Guðmundur og Guðríður Jónasdóttir húsfreyja, síðari kona hans, uppeldi systkinanna.

Börn Sigjóns og Sigrúnar:
1. Þórunn Aðalheiður Sigjónsdóttir húsfreyja, f. 27. febrúar 1913 á Skaftafelli, d. 25. júlí 1998. Maður hennar var Svavar Þórðarson.
2. Bragi Sigjónsson vélstjóri, f. 27. júní 1914 á Skaftafelli, d. 25. september 1985. Kona hans var Rósa (Rósamunda) Einarsdóttir frá Seyðisfirði.
3. Sigurjón Sigjónsson, f. 16. ágúst 1915 á Eyjarhólum, d. 31. maí 1916.
4. Jón Garðar Sigjónsson vélstjóri, útgerðarmaður, hafnsögumaður á Höfn í Hornafirði, f. 18. október 1916 á Lögbergi, d. 15. febrúar 2006. Kona hans var Guðfinna Bjarnadóttir.
5. Tryggvi Sigjónsson útgerðarmaður á Höfn í Hornafirði, f. 10. apríl 1918 á Lögbergi, d. 26. janúar 2000. Kona hans var Herdís Ragna Clausen.
6. Þórhallur Sigjónsson vörubifreiðastjóri í Reykjavík, f. 11. maí 1919 á Lögbergi, d. 17. júlí 1993. Kona hans var Ólöf Hannesdóttir.
7. Friðrik Sigjónsson, f. 22. október 1920 í Héðinshöfða, drukknaði 23. desember 1944.
8. Halldór Sigjónsson, f. 31. desember 1922, d. 25. júní 1930.
9. Guðríður Sigjónsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 26. febrúar 1924 í Héðinshöfða, d. 31. ágúst 1987. Maður hennar var Jón Karlsson.
10. Kristbjörg Sigjónsdóttir hjúkrunarfræðingur, húsfreyja í Reykjavík, f. 26. maí 1925 í Héðinshöfða. Maður hennar var Gísli Tómasson.
11. Gústaf Sigjónsson vélstjóri, skipstjóri, bifreiðstjóri, f. 22. janúar 1927 í Héðinshöfða. Kona hans er Guðbjörg Halldóra Einarsdóttir.
12. Guðmundur Sigjónsson vélvirki í Eyjum, f. 22. mars 1928 í Héðinshöfða, d. 7. nóvember 2009. Kona hans var Jónína Þuríður Guðnadóttir.

Fóstursystkini Guðríðar og Þóhalls í Hallgeirsey voru:
Börn hjónanna:
1. Guðlaugur Grétar Guðmundsson, f. 9. ágúst 1934, d. 13. júlí 1937.
2. Jónas Ragnar Guðmundsson prentari í Reykjavík, f. 28. september 1935 Fósturbörn þeirra auk Guðríðar og Þórhalls:
3. Gísli Halldór Jónasson skipstjóri, f. 23. september 1933, kvæntur Viktoríu Karlsdóttur.
4. Magnús Stefánsson skipstjóri, f. 4. desember 1937. Fyrri kona hans var Hrefna Sighvatsdóttir.

Guðríður var með foreldrum sínum í Héðinshöfða fyrstu 4 árin, en fór þá ásamt Þórhalli bróður sínum í fóstur að Hallgeirsey.
Sigjón faðir hennar hafði veikst af Spænsku veikinni 1918 og stríddi lengi við afleiðingar hennar. Það leiddi til þess, að þau Sigrún urðu að koma 5 börnum sínum í fóstur. Tvö þeirra fóru í fóstur í Landeyjar og þrjú á Mýrar í A-Skaft.
Guðríður fluttist til Reykjavíkur. Hún vann um langt skeið við matreiðslu á Fæðingarheimili Reykjavíkur.
Þau Jón eignuðust 3 börn.

Maður Guðríðar, (9. mars 1945), var Jón Karlsson sjómaður, f. 13. mars 1921, d. 1. febrúar 1997.
Börn þeirra:
1. Kolbrún Jónsdóttir húsfreyja, verslunarstjóri, f. 25. júlí 1946. Maður hennar er Guðbergur Kristinsson rafeindavirki.
2. Hrafnhildur Jónsdóttir húsfreyja, f. 19. febrúar 1949. Maður hennar er Georg Árnason vélfræðingur.
3. Edda Kristín Jónsdóttir húsfreyja, sjúkraliði, f. 24. maí 1959. Maður hennar er Sverrir Jónsson símsmiður.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Morgunblaðið 8. september 1987. Minning.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.