Sverrir Jónsson (Túni)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 17. janúar 2015 kl. 15:09 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 17. janúar 2015 kl. 15:09 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Sverrir Jónsson vinnumaður fæddist 6. nóvember 1857 í Steinmóðshúsi og mun hafa látist í Vesturheimi.
Foreldrar hans voru Jón Sverrisson, f. 19. júní 1833, d. 10. maí 1859, og kona hans, Margrét Jónsdóttir húsfreyja, f. 6. apríl 1825, d. 25. desember 1865.

Sverrir var niðursetningur hjá Evlalíu Nikulásdóttur í Móhúsum 1860 eftir lát föður síns, í Dölum 1861, aftur hjá Evlalíu í Móhúsum 1862-1864, Nýja-Kastala hjá Margréti Jónsdóttur 1871.
Hann var vinnumaður á Vilborgarstöðum 1880, í Draumbæ 1885 og á Löndum 1890.
Sverrir fór til Vesturheims 1892 frá Löndum.

I. Barnsmóðir Sverris var Þorbjörg Þorvaldsdóttir frá Krosshjáleigu í A-Landeyjum, þá vinnukons í Dölum, f. 7. mars 1843, d. 4. janúar 1925.
Barn þeirra var
1. Ingibergur Sverrisson, f. 18. júni 1882. Hann fór til lands 1883 með móður sinni, var tökubarn á Hellnahóli u. Eyjafjöllum hjá Sólrúnu móðursystur sinni 1890, vinnumaður í Rimakoti í A-Landeyjum 1901.

II. Barnsmóðir Sverris var Elína Pétursdóttir, f. 10. september 1845, d. 24. janúar 1926.
Barn þeirra var
4. Guðný Sverrisdóttir, f. 24. júlí 1885, d. 24. nóvember 1887.


Heimildir