Sveinn Þórðarson (Brandshúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 4. janúar 2015 kl. 20:37 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 4. janúar 2015 kl. 20:37 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Sveinn Þórðarson''' tómthúsmaður í Brandshúsi fæddist 1824 á Kvíhólma u. Eyjafjöllumog lést 10. júlí 1860.<br> Faðir hans var Þórður bóndi á Hjáleigusön...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sveinn Þórðarson tómthúsmaður í Brandshúsi fæddist 1824 á Kvíhólma u. Eyjafjöllumog lést 10. júlí 1860.
Faðir hans var Þórður bóndi á Hjáleigusöndum og Hvammi u. Eyjafjöllum, f. 1782 á Ytri-Sólheimum í Mýrdal, d. 27. júlí 1838 á Hjáleigusöndum, Sveinsson bónda, síðast á Hryggjum í Mýrdal, f. 1758, d. 20. október 1838 á Skeiðflöt í Mýrdal, Eyjólfssonar bónda á Hvoli í Mýrdal og Áshól u. Eyjafjöllum, f. 1715, og fyrri konu Eyjólfs, Þórunnar húsfreyju, f. 1716, Sigurðardóttur.
Móðir Þórðar á Hjáleigusöndum og kona Sveins á Hryggjum var Guðrún húsfreyja, f. 1760 í Kálfholti í Holtum, d. 7. júlí 1838 á Skeiðflöt, Þórðardóttir prests í Kálfholti, f. 1727, d. 20. desember 1770, Sveinssonar, og konu sr. Þórðar, Guðfinnu húsfreyju, f. 1734, d. 23. ágúst 1824, Þorsteinsdóttur.

Móðir Sveins í Brandshúsi og síðari kona Þórðar á Hjáleigusöndum var Ólöf húsfreyja, f. 1789, d. 16. apríl 1859, Þorbjörnsdóttir bónda í Ásólfsskála 1801, f. 1772, Árnasonar Þorbjörnssonar, og konu Þorbjörns í Ásólfsskála, Vilborgar húsfreyju, f. 1771, Tómasdóttur.

Sveinn var bróðir Vilborgar Þórðardóttur húsfreyju í Elínarhúsi, Geirdísar Þórðardóttur húsfreyju í París og Þorbjörns Þórðarsonar vinnumanns, sjómanns frá Svaðkoti og var systursonur Vigdísar Þorbjörnsdóttur í Svaðkoti og Eyjólfs hreppstjóra á Búastöðum.

Sveinn var með foreldrum sínum á Hjáleigusöndum u. Eyjafjöllum 1835 og með ekkjunni móður sinni þar 1840.
Hann var vinnumaður hjá Gísla Jónssyni bónda í Presthúsum 1845.
Sveinn var fyrirvinna hjá ekkjunni Ingveldi Guðbrandsdóttur í Brandshúsi 1846, kvæntur henni 1847, kvæntur tómthúsmaður þar, fór frá Juliushaab til Kaupmannahafnar 1849, og ekki getið síðan fyrr en 1859 og þá skráð á spássíu „í bið..“. Hann „kom frá betrunarhúsinu í Kaupmannahöfn“ 1859 og var til heimilis í Brandshúsi við andlát 1860. Ingveldur var skráð gift kona í Brandshúsi til 186o, ekkja til 1862.

Kona Sveins, (18. júlí 1847), var Ingveldur Guðbrandsdóttir húsfreyja í Brandshúsi, ekkja eftir Brand Eiríksson. Hún var fædd 23. júlí 1808, d. 29. júlí 1863.
Barn þeirra Ingveldar var
1. Ólöf Sveinsdóttir, f. 25. september 1847, d. 3. október 1847 úr ginklofa.


Heimildir