Sigrún Jónsdóttir (Melstað)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. apríl 2013 kl. 21:01 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. apríl 2013 kl. 21:01 eftir Víglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Sigrún Jónsdóttir (Melstað)“ [edit=sysop:move=sysop])
Fara í flakk Fara í leit

Sigrún Jónsdóttir húsfreyja á Melstað fæddist 10. febrúar 1886 og lést 16. febrúar 1978.
Foreldrar hennar voru Jón Einarsson á Hrauni, f. 26. mars 1851, d. 3. ágúst 1924 og kona hans Þórunn Þorsteinsdóttir, f. 19. apríl 1850, d. 15. mars 1903.
Sigrún var systir Þorsteins í Laufási.

Sigrún var 4 ára með foreldrum sínum á Vilborgarstöðum 1890, 15 ára hjá þeim á Hrauni 1901.
Hún var gift húsfreyja á Sigurðarstöðum í Seyðisfirði 1910 með Sigurði Hermannssyni.
Þau Sigurður byggðu Melstað við Faxastíg 8b 1913.
Eftir lát Sigurðar 1920 bjó Sigrún áfram á Melstað með síðari manni sínum Ágústi Úlfarssyni.

Systkinin Þórunn Sigurðardóttir og Þorsteinn Sigurðsson, - frá Melstað.

Sigrún var tvígift:
I. Fyrri maður hennar var Sigurður Hermannsson útgerðarmaður og skipstjóri, f. 15. desember 1885, drukknaði 22. maí 1920.
Börn Sigrúnar og Sigurðar voru:
1. Þórunn Sigurðardóttir húsfreyja, f. 6. ágúst 1911, d. 17. janúar 1996, gift Jóni Ólafssyni bankamanni, f. 20. mars 1909, d. 9. mars 1960.
2. Þorsteinn Sigurðsson frystihúsrekandi, f. 14. nóvember 1913, d. 19. júní 1997, kvæntur Önnu Ólafíu Jónsdóttur húsfreyju frá Hólmi, f. 11. október 1917, d. 9. júlí 2007.
3. Sigríður Sigurðardóttir, f. 26. nóvember 1917, d. 20. júní 1921.
II. Síðari maður Sigrúnar var Ágúst Úlfarsson útgerðarmaður, f. 9. júní 1896, d. 5. október 1979.
Barn Sigrúnar og Úlfars:
4. Sigurður Ágústsson flugvirki, f. 7. desember 1922, d. 2. maí 1975.


Heimildir