Sólrún Bjarnadóttir (Kirkjubæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. nóvember 2013 kl. 20:29 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. nóvember 2013 kl. 20:29 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Sólrún Bjarnadóttir''' húsfreyja á Kirkjubæ og Vilborgarstöðum fæddist 1775, var á lífi 1835. Sólrún var vinnukona á Kirkjubæ 1801 og þar var einnig Ólafur Sigval...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sólrún Bjarnadóttir húsfreyja á Kirkjubæ og Vilborgarstöðum fæddist 1775, var á lífi 1835.

Sólrún var vinnukona á Kirkjubæ 1801 og þar var einnig Ólafur Sigvaldason vinnumaður. Hún var húsfreyja á Vilborgarstöðum 1816, en ekkja á Kirkjubæ 1835.

Sólrún var tvígift.
I. Fyrri maður hennar, (14. júlí 1799), var Ólafur Sigvaldason frá á Kirkjubæ, f. 1762, d. 1. september 1810 af miltisbrandi.
Barn þeirra hér:
1. Bjarni Ólafsson, f. í september 1799, d. 12. september 1799.

II. Síðari maður hennar, (29. september 1810), var Eyjólfur Hreiðarsson bóndi á Vilborgarstöðum, f. 1747, 13. september 1827. Hún var síðari kona hans.
Börn þeirra hér:
2. Ólafur Eyjólfsson, tvíburi, f. 13. nóvember 1811. Hann hrapaði til bana úr Heimakletti 9. júní 1833.
3. Elísabet Eyjólfsdóttir, tvíburi, f. 13. nóvember 1811, d. 18. nóvember 1811.


Heimildir