„Ritverk Árna Árnasonar/Pétur Guðjónsson (Kirkjubæ)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 5: Lína 5:
'''Pétur Guðjónsson''' frá [[Oddsstaðir|Oddsstöðum]], bóndi og gjaldkeri á [[Kirkjubær|Kirkjubæ]], fæddist 12. júlí 1902 og lést 21. ágúst 1982.

'''Pétur Guðjónsson''' frá [[Oddsstaðir|Oddsstöðum]], bóndi og gjaldkeri á [[Kirkjubær|Kirkjubæ]], fæddist 12. júlí 1902 og lést 21. ágúst 1982.

Foreldrar hans voru [[Guðjón Jónsson (Oddsstöðum)|Guðjón Jónsson]] bóndi og líkkistusmiður á Oddsstöðum, f. 27. desember 1874, d. 25. október 1959, og fyrri kona hans
Foreldrar hans voru [[Guðjón Jónsson (Oddsstöðum)|Guðjón Jónsson]] bóndi og líkkistusmiður á Oddsstöðum, f. 27. desember 1874, d. 25. október 1959, og fyrri kona hans
[[Martea Guðlaug Pétursdóttir (Oddsstöðum)|Martea ‘’Guðlaug Pétursdóttir]] húsfreyja, f. 1. mars 1876,  d. 24. júní 1921.

[[Martea Guðlaug Pétursdóttir (Oddsstöðum)|Martea ''Guðlaug'' Pétursdóttir]] húsfreyja, f. 1. mars 1876,  d. 24. júní 1921.

Pétur var tvíkvæntur:

Pétur var tvíkvæntur:

Útgáfa síðunnar 9. maí 2014 kl. 17:42

Pétur Guðjónsson.
Pétur Guðjónsson.

Kynning.

Pétur Guðjónsson frá Oddsstöðum, bóndi og gjaldkeri á Kirkjubæ, fæddist 12. júlí 1902 og lést 21. ágúst 1982.
Foreldrar hans voru Guðjón Jónsson bóndi og líkkistusmiður á Oddsstöðum, f. 27. desember 1874, d. 25. október 1959, og fyrri kona hans Martea Guðlaug Pétursdóttir húsfreyja, f. 1. mars 1876, d. 24. júní 1921.

Pétur var tvíkvæntur:
I. Fyrri kona hans var Guðrún Guðjónsdóttir húsfreyja frá Tóarseli í Breiðdal, f. 17. apríl 1905, d. 18. október 1938.
Börn Péturs og Guðrúnar:
1. Ósk, f. 12. nóvember 1926.
2. Guðlaug, f. 25. september 1928.
3. Guðlaugur Magnús, f. 5. ágúst 1931.
4. Jóna Halldóra, f. 18. ágúst 1933.
5. Guðjón, f. 31. júlí 1935, d. 25. janúar 1985.

II. Síðari kona Péturs var Lilja Sigfúsdóttir, f. 11. október 1917, d. 15 október 1990.
Börn Péturs og Lilju:
6. Guðrún Rannveig, f. 10. desember 1939.
7. Árni, f. 4. febrúar 1941, d. 9. október 1996.
8. Brynja, f. 16. ágúst1946.
9. Herbjört, f. 26. febrúar 1951, d. 2. maí 1999.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Pétur er einn af sönnum sonum Eyjanna og frömuðum Elliðaeyinga síðari ár.
Hann er hár vexti og nokkuð grannur, en axlabreiður, dökkhærður, langleitur, fríður sýnum, léttur á velli og snar í hreyfingum.
Hann er stilltur og virkar daufur í framkomu, en við viðræður kátur, ræðinn, glöggur, vel heima víða. Í sínum hóp er Pétur skemmtilegur og vel kátur, en enginn galgopi í kæti. Pétur er einn af bestu veiðimönnum nútímans í Eyjum og vanur frá barnæsku við kennslu föður síns.
Hann hefir að mestu verið í Elliðaey til lunda, en annars tekið virkan þátt í fuglaveiðum og eggjatekju í ýmsum úteyjum.
Pétur hefir stundað búskap, sjómennsku, verslunarstörf, tekið virkan þátt í verkalýðsmálum Eyjanna, hvarvetna góður liðsmaður til starfa, vellátinn, skarpur og glöggur.

Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit

Heimildir