Ritverk Árna Árnasonar/Guðni Hjörtur Johnsen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 8. ágúst 2013 kl. 20:38 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 8. ágúst 2013 kl. 20:38 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Guðni J. Johnsen''' útgerðarmaður og kaupmaður frá Frydendal, síðar í Ásbyrgi, fæddist 15. júní 1888 og lést 18. janúar 1921.<br> Foreldrar hans voru [[Jóha...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Guðni J. Johnsen útgerðarmaður og kaupmaður frá Frydendal, síðar í Ásbyrgi, fæddist 15. júní 1888 og lést 18. janúar 1921.
Foreldrar hans voru Jóhann Johnsen veitingamaður í Frydendal, f. 9. október 1847, d. 11. maí 1893, sonur Jóhanns Jörgens Johnsen, þá faktors við Garðsverslun, síðar í Hafnarfirði, og kona Jóhanns J. Johnsen Önnu Sigríðar Johnsen Árnadóttur bónda á Oddsstöðum Þórarinssonar.

Kona Guðna var Jóhanna Erlendsdóttir húsfreyja í Ásbyrgi, f. 5. júlí 1888, d. 3. september 1970. Guðni var fyrri maður hennar.
Börn Guðna og Jóhönnu voru:
1. Friðþjófur Ingi Guðnason Johnsen lögfræðingur, f. 21. júlí 1911, d. 20. apríl 1963.
2. Ágústa Sigríður Möller húsfreyja í Reykjavík, f. 26. júní 1913, d. 29. október 2007.
3. Rögnvaldur Johnsen húsameistari, f. 5. apríl 1920, d. 26. febrúar 2008.


Heimildir