Ritverk Árna Árnasonar/Bjarni Bjarnason (rakari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. ágúst 2013 kl. 17:00 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. ágúst 2013 kl. 17:00 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Bjarni Bjarnason rakari.

Bjarni Bjarnason rakari fæddist 12. maí 1916 og lést 26. desember 1998.
Foreldrar hans voru Bjarni Bjarnason formaður á Hoffelli, f. 18. maí 1885, drukknaði við Eiðið 16. desember 1924, og kona hans Jónína Sigurðardóttir, f. 17. september 1892 á Parti í Húsavík í N-Múl., dáin 27. desember 1988.

Bjarni ólst upp í Eyjum. Þar var hann á Hoffelli með foreldrum sínum og Jóhanni bróður sínum 1920.
Hann missti föður sinn átta ára.
Ungur var hann sendill og stundaði sjómennsku. Móðir hans átti í útgerð í fyrstu og vann fjölskyldan við hana.
Hann hóf hárskeranám 18 ára hjá Árna Böðvarssyni og stundaði iðnina í 35 ár.
Þá hóf hann afgreiðslustörf í Brynjólfsbúð, sem var í eigu Kaupfélagsins og þar var hann deildarstjóri fram að Gosi og að nokkru leyti í Gosinu.
Bjarni fékk vinnu í Kassagerðinni eftir gos og vann þar síðan meðan aldur leyfði.
Þau Kristín fengu inni í Viðlagasjóðshúsum í Kópavogi, keyptu sér síðan íbúð í Hraunbæ í Reykjavík. Þar bjuggu þau meðan Kristín lifði. Að lokum dvaldi hann á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Bjarni var félagi í Oddfellow-reglunni og einnig í Akóges.

Kona Bjarna, (19. júlí 1941), var Kristín Einarsdóttir húsfreyja, f. 29. apríl 1914, d. 7. febrúar 1995.

Börn Bjarna og Kristínar:
1. Jónína öryrki, fædd 9. janúar 1942, búsett að Hátúni í Reykjavík.
2. Anna Erna húsfreyja og starfsmaður Íslensk ameríska verslunarfélagsins, fædd 16. apríl 1943, dáin 3. febrúar 1996, gift Magnúsi Karlssyni vélvirkja og tollverði.
3. Bjarni sjómaður, fæddur 20. nóvember 1946, dáinn 19. ágúst 1966.
4. Guðbjörg Helga húsfreyja og hjúkrunarfræðingur, fædd 2. maí 1948, gift Hjalta Jóhannssyni tæknifræðingi í Hafnarfirði.
5. Einar Bjarnason frystihússeigandi í Eyjum, f. 8. ágúst 1956, kvæntur Ester Ólafsdóttur Runólfssonar.


Heimildir