María Bjarnasen (Stakkagerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. júlí 2014 kl. 14:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. júlí 2014 kl. 14:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Dortija ''Maria'' Andersdóttir ''Bjarnasen''''' húsfreyja í Garðinum fæddist 3. júní 1839. Foreldrar hennar voru Anders Asmundsen skipstjóri, f. 1808, ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Dortija Maria Andersdóttir Bjarnasen húsfreyja í Garðinum fæddist 3. júní 1839. Foreldrar hennar voru Anders Asmundsen skipstjóri, f. 1808, drukknaði 1851, og Ásdís Jónsdóttir húsfreyja, f. 18. janúar 1815, d. 21. nóvember 1892.

María var með foreldrum sínum 1850.
Hún sigldi til Kaupmannahafnar 1856 og dvaldi þar til ársins 1862.
Eftir heimkomu giftist hún Gísla Bjarnasen, en hann hafði komið frá Kaupmannahöfn 1860. Hann varð verslunarstjóri í Juliushaab og síðan í Garðinum.
Þau María misstu 6 ára dreng 1875.
Gísli var verslunarfulltrúi í Garðinum 1880.
Þau bjuggu í Pétursborg 1882 og á Vilborgarstöðum 1883.
Fjölskyldan fluttist alfarin til Danmerkur 1883.

Maðir Maríu, (21. nóvember 1862), var Gísli Bjarnasen verslunarstjóri, f. 30. maí 1837.
Börn þeirra hér:
1. Johan Carl Anders Bjarnasen, f. 5. febrúar 1869, d. 4. maí 1875.
2. María Sigríður Ásdís Bjarnasen, f. 12. mars 1871. Hún fluttist til Danmerkur.
3. Jóhann Gísli Anders Bjarnasen, f. 30. desember 1873. Hann fluttist til Danmerkur.
4. Rósa Jónína Petrea Bjarnasen, f. 20. ágúst 1875 í Stakkagerði. Hún fluttist til Danmerkur.
5. Jóhanna Soffía Ágústa Bjarnasen, f. 24. ágúst 1877. Hún fluttist til Danmerkur.
6. Níels Kristinn Benedikt Bjarnasen, f. 23. febrúar 1879. Hann fluttist til Danmerkur.
7. Anders Peter Asmund Bjarnasen, f. 2. febrúar 1882 í Pétursborg. Hann fluttist til Danmerkur.


Heimildir