María Bjarnasen (Stakkagerði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Dortija Maria Andersdóttir Bjarnasen húsfreyja í Garðinum fæddist 3. júní 1839, d. 7. apríl 1916.
Foreldrar hennar voru Anders Asmundsen skipstjóri, f. 1808, drukknaði 1851, og Ásdís Jónsdóttir húsfreyja, f. 18. janúar 1815, d. 21. nóvember 1892.

María var með foreldrum sínum 1850. Faðir hennar fórst 1851 og 1855 var hún með móður sinni í Stakkagerði.
Hún sigldi til Kaupmannahafnar 1856 í fylgd Ólafs Jónssonar móðurbróður síns og dvaldi þar til ársins 1862.
Eftir heimkomu giftist hún Gísla Bjarnasen, en hann hafði komið frá Kaupmannahöfn 1860. Hann varð verslunarstjóri í Juliushaab og síðan í Garðinum.
Þau María misstu 6 ára dreng 1875.
Gísli var verslunarfulltrúi í Garðinum 1880.
Þau bjuggu í Pétursborg 1882 og á Vilborgarstöðum 1883.
Fjölskyldan fluttist alfarin til Danmerkur 1883.

Maður Maríu, (21. nóvember 1862), var Gísli Bjarnasen verslunarstjóri, f. 30. maí 1837, d. 16. mars 1888.
Börn þeirra hér:
1. Johan Carl Anders Bjarnasen, f. 5. febrúar 1869, d. 4. maí 1875 „úr Diphtheria“, (barnaveiki).
2. María Sigríður Ásdís Bjarnasen, f. 12. mars 1871. Hún fluttist til Danmerkur.
3. Jóhann Gísli Anders Bjarnasen, f. 30. desember 1873. Hann fluttist til Danmerkur.
4. Rósa Jónína Petrea Bjarnasen, f. 20. ágúst 1875 í Stakkagerði. Hún fluttist til Danmerkur.
5. Jóhanna Soffía Ágústa Bjarnasen, f. 24. ágúst 1877. Hún fluttist til Danmerkur.
6. Níels Kristinn Benedikt Bjarnasen, f. 23. febrúar 1879. Hann fluttist til Danmerkur.
7. Anders Peter Asmund Bjarnasen, f. 2. febrúar 1882 í Pétursborg. Hann fluttist til Danmerkur.
Sjá einnig: Blik 1976/Kunnir ættliðir í Eyjum og fleira Eyjafólk.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.