„Magnús Magnússon (Vesturhúsum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 8: Lína 8:
Þrátt fyrir að Magnús hafi alist upp á sjómannsheimili ákvað hann að læra trésmíði hjá [[Jóhann Jónsson (Brekku)|Jóhanni Jónssyni]] frá [[Brekka|Brekku]] og varð húsasmíða- og húsgagnasmíðameistari. Hann ásamt fleirum stofnaði síðar fyrirtækið Smið hf. árið 1945 sem hann átti fram yfir gos. Magnús var heiðursfélagi í Iðnaðarmannafélaginu, virkur í starfi [[Sjálfstæðisflokkurinn|Sjálfstæðisflokksins]] og eldheitur [[Knattspyrnufélagið Týr|Týrari]].

=Frekari umfjöllun=
'''Magnús Magnússon''' trésmíðameistari frá [[Vesturhús]]um fæddist 12. september 1905 og lést 26. maí 1978.

Foreldrar hans voru [[Magnús Guðmundsson (Vesturhúsum)|Magnús Guðmundsson]] bóndi og formaður á Vesturhúsum, f. 27. júní  1872, d. 24. apríl 1955, og kona hans [[Jórunn Hannesdóttir (Vesturhúsum)|Jórunn Hannesdóttir]] húsfreyja, f. 30. september 1879, d. 24. janúar 1962.

Magnús var menntaður húsasmiður og húsgagnasmiður. Hann var mjög virkur húsameistari. Eitt af fyrstu og stærstu byggingunum, sem hann ábyrgðist var Hraðfrystistöðin.

Hann var einn af stofnendum Smiðs h.f. og var meistari að þeim byggingum, sem fyrirtækið annaðist. Má þar nefna Sjúkrahúsið, Útvegsbankahúsið (nú Íslandsbankinn) við Kirkjuveg, hluta af Ísfélagsbyggingunum, turnbygginguna við Landakirkju, viðbyggingu við Barnaskólann.
Kona Magnúsar, (1. nóvember 1930), var  [[Kristín Ásmundsdóttir (húsfreyja)|Kristín Ásmundsdóttir]] húsfreyja, f. 24. ágúst 1908, d. 9. júlí 1998.

Þau bjuggu m.a. á [[Brekastígur|Brekastíg 6]], [[Helgafellsbraut|Helgafellsbraut 7]], í [[Sunnudalur|Sunnudal]], á [[Heiði|Stóru-Heiði]], en lengst á [[Ásavegur|Ásavegi 27]].

Börn Magnúsar og Kristínar:

1. [[Helgi Jón Magnússon (Heiði)|Helgi Jón]], f. 20. febrúar 1934, kvæntur [[Unnur Tómasdóttir (kennari)|Unni Tómasdóttur]].

2. [[Ása Emma Magnúsdóttir (Heiði)|Ása Emma]], f. 22. júní 1939, d. 13. apríl 1986, gift [[Guðmundur Loftsson|Guðmundi Loftssyni]].

3. [[Petra Magnúsdóttir (Heiði)|Petra]], f. 13. október 1945, gift [[Þorkell Þorsteinsson|Þorkeli Þorsteinssyni]].

'''''Úr fórum [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara:
Bjargveiðimannatal.'''''

Magnús er maður allhár vexti, dökkhærður og frekar ljós yfirlitum. Hann er fremur rösklega vaxinn, meðalmaður að kröftum, en fylginn sér og vel snar í hreyfingum. Hann er skapléttur, ræðinn og skemmtilegur í sínum hóp, vinhollur og góður félagi.

Veiðimaður er Magnús allgóður ennþá, en hefir tapað í leikni vegna þjálfunarskorts hin síðari ár. Hann hefir aðallega verið að veiðum í [[Álsey]] og var uppáhaldsstaður hans til veiða svonefnd [[Lendarflá|„Lendarflá“]], sem er á suðaustur hábrún eyjarinnar.

Magnús er trésmíðameistari að iðn, á alls kyns húsasmíðar afhaldinn og eftirsóttur. Hann hefir verið töluvert við bjargferðir til eggja og fugla og getið sér hið besta orð í hvers konar aðsókn þeirra nytja.

{{Árni Árnason}}
{{Heimildir|
*Samantekt: [[Víglundur Þór Þorsteinsson]].
*Eyjar og úteyjalíf – Úrval verka [[Árni Árnason (símritari)|Árna Árnasonar]] símritara frá [[Grund]]. Sögufélag Vestmannaeyja í samstarfi við Safnahús Vestmannaeyja 2012.
*Íslendingabók.is.
*[[Unnur Tómasdóttir (kennari)|Unnur Tómasdóttir]].}}
[[Flokkur: Iðnaðarmenn]]
[[Flokkur: Fólk fætt á  20. öld]]
[[Flokkur: Fólk dáið á 20. öld]]
[[Flokkur: Íbúar á Stóru-Heiði]]
[[Flokkur: Íbúar við Sólhlíð]]
[[Flokkur: Íbúar við Helgafellsbraut]]
[[Flokkur: Íbúar í Sunnudal]]
[[Flokkur: Íbúar við Kirkjuveg]]
[[Flokkur: Íbúar við Ásaveg]]
[[Flokkur: Týrarar]]
== Myndir ==
== Myndir ==
<Gallery>
<Gallery>
Lína 17: Lína 52:

</gallery>
</gallery>
[[Flokkur:Húsasmiðir]]
[[Flokkur:Týrarar]]
[[Flokkur:Fólk fætt á 20. öld]]
[[Flokkur:Fólk dáið á 20. öld]]
[[Flokkur:Íbúar í Vesturhúsum]]

Útgáfa síðunnar 11. ágúst 2013 kl. 19:48

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Magnús Magnússon

Magnús og Nanna systir hans.

Magnús Magnússon fæddist 12. september 1905 að Vesturhúsum og lést 26. maí 1978. Hann var sonur Magnúsar Guðmundssonar og Jórunnar Hannesdóttur. Kona Magnúsar var Kristín Margrét Ásmundsdóttir frá Seyðisfirði.

Þrátt fyrir að Magnús hafi alist upp á sjómannsheimili ákvað hann að læra trésmíði hjá Jóhanni Jónssyni frá Brekku og varð húsasmíða- og húsgagnasmíðameistari. Hann ásamt fleirum stofnaði síðar fyrirtækið Smið hf. árið 1945 sem hann átti fram yfir gos. Magnús var heiðursfélagi í Iðnaðarmannafélaginu, virkur í starfi Sjálfstæðisflokksins og eldheitur Týrari.

Frekari umfjöllun

Magnús Magnússon trésmíðameistari frá Vesturhúsum fæddist 12. september 1905 og lést 26. maí 1978.
Foreldrar hans voru Magnús Guðmundsson bóndi og formaður á Vesturhúsum, f. 27. júní 1872, d. 24. apríl 1955, og kona hans Jórunn Hannesdóttir húsfreyja, f. 30. september 1879, d. 24. janúar 1962.

Magnús var menntaður húsasmiður og húsgagnasmiður. Hann var mjög virkur húsameistari. Eitt af fyrstu og stærstu byggingunum, sem hann ábyrgðist var Hraðfrystistöðin.
Hann var einn af stofnendum Smiðs h.f. og var meistari að þeim byggingum, sem fyrirtækið annaðist. Má þar nefna Sjúkrahúsið, Útvegsbankahúsið (nú Íslandsbankinn) við Kirkjuveg, hluta af Ísfélagsbyggingunum, turnbygginguna við Landakirkju, viðbyggingu við Barnaskólann.

Kona Magnúsar, (1. nóvember 1930), var Kristín Ásmundsdóttir húsfreyja, f. 24. ágúst 1908, d. 9. júlí 1998.
Þau bjuggu m.a. á Brekastíg 6, Helgafellsbraut 7, í Sunnudal, á Stóru-Heiði, en lengst á Ásavegi 27.

Börn Magnúsar og Kristínar:
1. Helgi Jón, f. 20. febrúar 1934, kvæntur Unni Tómasdóttur.
2. Ása Emma, f. 22. júní 1939, d. 13. apríl 1986, gift Guðmundi Loftssyni.
3. Petra, f. 13. október 1945, gift Þorkeli Þorsteinssyni.

Úr fórum Árna Árnasonar símritara:
Bjargveiðimannatal.

Magnús er maður allhár vexti, dökkhærður og frekar ljós yfirlitum. Hann er fremur rösklega vaxinn, meðalmaður að kröftum, en fylginn sér og vel snar í hreyfingum. Hann er skapléttur, ræðinn og skemmtilegur í sínum hóp, vinhollur og góður félagi.
Veiðimaður er Magnús allgóður ennþá, en hefir tapað í leikni vegna þjálfunarskorts hin síðari ár. Hann hefir aðallega verið að veiðum í Álsey og var uppáhaldsstaður hans til veiða svonefnd „Lendarflá“, sem er á suðaustur hábrún eyjarinnar.
Magnús er trésmíðameistari að iðn, á alls kyns húsasmíðar afhaldinn og eftirsóttur. Hann hefir verið töluvert við bjargferðir til eggja og fugla og getið sér hið besta orð í hvers konar aðsókn þeirra nytja.

Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit

Heimildir

Myndir