„Landlyst“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(bæti við)
Ekkert breytingarágrip
Lína 11: Lína 11:
Sumarið 1847 kom danski læknirinn [[Peter Anton Schleisner]] til Eyja, sendur hingað af danska ríkinu til að takast á við þennan faraldur. Schleisner og Sólveig tóku upp samvinnu og tókst þeim að útrýma ginklofanum á ótrúlega skömmum tíma.

Landlyst var íbúðarhús til 1972 þegar Vestmannaeyjabær keypti húsið og eftir þann tíma fór fram margs konar starfsemi í húsinu. Myndlistarskóli starfaði þar um tíma og ljósmyndaklúbbur fékk inni í húsinu. Gallerí var stofnað í Landlyst og sýningar haldnar þar.
Landlyst var íbúðarhús til 1972 þegar Vestmannaeyjabær keypti húsið. Eftir þann tíma fór fram margs konar starfsemi í húsinu. Myndlistarskóli starfaði þar um tíma og ljósmyndaklúbbur fékk inni í húsinu. Gallerí var stofnað í Landlyst og sýningar haldnar þar.

[[Flokkur:Hús]]
[[Flokkur:Hús]]

Útgáfa síðunnar 29. júní 2006 kl. 15:52

Landlyst þegar húsið stóð við Strandveg 43b.

Húsið Landlyst er eitt af elstu húsum í Eyjum. Húsið stóð við Strandveg 43b fram til ársins 1992, er það var tekið niður og friðlýst.

Landlyst á Skansinum.

Landlyst var byggð árið 1848 og stendur núna í sinni upprunalegu mynd á Skanssvæðinu. Þar hefur verið komið upp læknaminjasafni. Við húsið var fyrsta fæðingarheimili á Íslandi byggt árið 1847.

Húsið var byggt af Matthíasi Markússyni snikkara og konu hans Sólveigu Pálsdóttur ljósmóður. Sólveig var send til ljósmæðranáms í Kaupmannahöfn og við heimkomuna var byggt fæðingarheimili við Landlyst með styrk frá danska ríkinu. Þetta kom til vegna landlægs sjúkdóms sem nefndist ginklofi (stífkrampi) og lagðist hann sérstaklega á ungabörn. Ginklofinn var skæðari í Eyjum en annars staðar hér á landi og ungbarnadauði var mikill.

Sumarið 1847 kom danski læknirinn Peter Anton Schleisner til Eyja, sendur hingað af danska ríkinu til að takast á við þennan faraldur. Schleisner og Sólveig tóku upp samvinnu og tókst þeim að útrýma ginklofanum á ótrúlega skömmum tíma.