Kristín Gestsdóttir (Norðurgarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 20. apríl 2024 kl. 16:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 20. apríl 2024 kl. 16:44 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Viglundur færði Kristín Gestsdóttir á Kristín Gestsdóttir (Norðurgarði))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Kristín Gestsdóttir frá Hrauki í Djúpárhreppi, Rang., húsfreyja fæddist þar 7. apríl 1843 og lést 11. október 1921.
Foreldrar hennar voru Gestur Gestsson bóndi, f. 29. október 1804 í Vatnskoti í Djúpárhreppi, d. 23. júní 1885, og kona hans Hólmfríður Árnadóttir húsfreyja, f. 1800, d. 16. apríl 1866.

Þau Jón hófu sambúð, eignuðust ekki börn saman, voru vinnuhjú í Hrauki í Djúpárhreppi og talin búendur þar 1882-1884, en síðan í húsmennsku til 1887.
Þau fluttu til Eyja 1887, bjuggu í Norðurgarði til 1895, rufu þá samvistir.
Kristín var vinnukona í V.-Landeyjum og í Þykkvabæ á árunum 1896-1898, í Brekkuhúsi 1901, á Steinsstöðum 1910, var lausakona, saumakona, í dvöl á Hjalla 1920.
Hún lést 1921.

I. Sambúðarmaður Kristínar var Jón Gíslason frá Grímsstöðum í V.-Landeyjum, bóndi, f. þar 31. maí 1839, d. 29. júní 1916.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Holtamannabók III – Djúpárhreppur. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjórn: Ragnar Böðvarsson. Rangárþing ytra 2010.
  • Íslendingabók.
  • Manntöl.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.