Klara Friðriksdóttir (Látrum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 31. maí 2013 kl. 20:49 eftir Víglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. maí 2013 kl. 20:49 eftir Víglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Klara Friðriksdóttir''' húsfreyja á Látrum fæddist 26. september 1916 og lést 30. desember 2008.<br> Foreldrar hennar voru Friðrik útvegsbón...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Klara Friðriksdóttir húsfreyja á Látrum fæddist 26. september 1916 og lést 30. desember 2008.
Foreldrar hennar voru Friðrik útvegsbóndi og formaður á Látrum, f. 7. desember 1868 í Dyrhólahjáleigu í Mýrdal, d. 29. október 1940 og kona hans Sigurína Katrín húsfreyja, f. 7. maí 1884 í Grindavíkursókn, d. 26. desember 1922.

Maður Klöru húsfreyju á Látrum var Jón Ísak Sigurðsson lóðs, f. 7. nóvember 1911, d. 28. júní 2000.

Börn Klöru og Jóns Ísaks:
1. Friðrik, f. 18. september 1939.
2. Svava , f. 30. september 1942.
3. Guðjón Þórarinn, f. 29. júní 1949.
4. Ragnar, f. 14. október 1952.


Heimildir