Jón Jónsson (Þingeyri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 13. júlí 2012 kl. 21:36 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 13. júlí 2012 kl. 21:36 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Jón Jónsson''' sjómaður á Þingeyri fæddist í Hlíð undir Eyjafjöllum 24. júlí 1881 og lézt 14. ágúst 1953 í Vesturheimi.<br> Foreldrar hans voru Gunnhildur Gunnhildard...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Jón Jónsson sjómaður á Þingeyri fæddist í Hlíð undir Eyjafjöllum 24. júlí 1881 og lézt 14. ágúst 1953 í Vesturheimi.
Foreldrar hans voru Gunnhildur Gunnhildardóttir vinnukona á Þorvaldseyri, f. 1853 og Jón Hjartarson vinnumaður í Hlíð, f. 1838.
Jón fluttist til Eyja 1902 og stundaði sjómennsku.
Kona hans var Steinunn Sigurðardóttir, síðar húsfreyja á Þingeyri. Hann var síðari maður hennar.
Þau eignuðust eitt barn, Magnús Júlíus, f. 1. júlí 1905, d. 1942.
Þau Steinunn bjuggu í Lambhaga 1920. Þau byggðu húsið Þingeyri og bjuggu þar til ársins 1924, er þau seldu það Sigurjóni Sigurðssyni og fluttust til Vesturheims.


Heimildir

  • Manntal 1920.
  • Landeyingabók - Austur-Landeyingar. Valgeir Sigurðsson, Ragnar Böðvarsson o.fl. Austur-Landeyjahreppur Gunnarshólma 1999.