„Jónína K.N. Brynjólfsdóttir (Löndum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 14: Lína 14:
[[Brynjúlfur Sigfússon|Brynjúlfur]] kaupmaður og tónlistarfrömuður, f. 1. mars 1885, d. 27. febrúar 1951.

[[Brynjúlfur Sigfússon|Brynjúlfur]] kaupmaður og tónlistarfrömuður, f. 1. mars 1885, d. 27. febrúar 1951.

[[Árni Sigfússon (Skálholti)|Árni]] kaupmaður, f. 1887, d. 7. mars 1948.

[[Árni Sigfússon (Skálholti)|Árni]] kaupmaður, f. 1887, d. 7. mars 1948.

[[Leifur Sigfússon tannlæknir|Leifur]] tannlæknir, f. 1892, d. 25. febrúar 1947.

[[Leifur Sigfússon|Leifur]] tannlæknir, f. 1892, d. 25. febrúar 1947.

Lífshlaupi  Jónínu og Sigfúsar er að nokkru lýst í [[Blik 1967|Bliki 1967]]: [[Blik 1967|III. Sigfús Árnason, organisti]] og er á það vísað.

Lífshlaupi  Jónínu og Sigfúsar er að nokkru lýst í [[Blik 1967|Bliki 1967]]: [[Blik 1967|III. Sigfús Árnason, organisti]] og er á það vísað.

Útgáfa síðunnar 29. júní 2013 kl. 20:41

Jónína K.N. Brynjólfsdóttir húsfreyja á Vestri-Löndum.

Jónína Kristín Nikólína Brynjólfsdóttir húsfreyja á Löndum fæddist 14. ágúst 1856 og lést 16. nóvember 1906.

Faðir Jónínu K.N. Brynjólfsdóttur var Brynjólfur prestur í Eyjum búandi í Nöjsomhed 1853-1861, síðan að Ofanleiti; alþingismaður 1859 og 1863, f. 8. september 1826 á Hofi í Álftafirði í S-Múl., d. 19. nóvember 1884 að Ofanleiti, Jónsson prests að Hofi, f. 9. nóvember 1798 að Stafafelli í Lóni, d. 16. ágúst 1843 á Hofi, Bergssonar prests og prófasts að Stafafelli 1797-1824, f. í ágúst 1772, d. 28. október 1837, Magnússonar, og konu sr. Bergs (1797), Guðrúnar húsfreyju og prestkonu, f. um 1764, d. 10. september 1849, Jónsdóttur.
Móðir sr. Brynjólfs og kona sr. Jóns Bergssonar var (29. ágúst 1824, fyrri maður hennar) Rósa húsfreyja og prestkona, f. 12. október 1802 í Eydölum í Breiðdal, S.-Múl., d. 2. júní 1856 í Þingmúla í Skriðdal á Héraði, Brynjólfsdóttir prests og prófasts í Eydölum, f. 8. september 1757, d. 30. júlí 1825, Gíslasonar, og konu sr Brynjólfs Gíslasonar, (1785), Kristínar húsfreyju og prestkonu, f. 1761, d. 15. október 1842, Nikulásdóttur.

Móðir Jónínu K.N. Brynjólfsdóttur og kona sr. Brynjólfs var Ragnheiður húsfreyja að Ofanleiti, f. 27. júní 1829, d. 11. ágúst 1921, Jónsdóttir verslunarstjóra í Kúvíkum við Reykjarfjörð á Suður-Ströndum, f. 1771 í Vík í Lóni, d. 27. júlí 1846, Salómonssonar bónda í Vík og Hraunkoti í Lóni, S-Múl., f. (1740), Jónssonar, og konu Salómons Jónssonar í Vík, Guðrúnar húsfreyju, f. 1735, Konráðsdóttur.
Móðir Ragnheiðar prestkonu að Ofanleiti og síðari kona (31. október 1818) Jóns Salómonssonar verslunarstjóra var Sigríður húsfreyja, f. 1788, d. 6. desember 1859, Benediktsdóttir bónda á Dvergsstöðum, Grísará og Munkaþverá, f. 1759, d. 9. júní 1823, Þorvaldssonar, og konu Benedikts, Sigríðar húsfreyju, f. 1756, Sigurðardóttur.

Maður Jónínu var, (10. júní 1882, skildu), Sigfús Árnason bóndi, tónlistarfrömuður, póstafgreiðslumaður og þingmaður, f. 10. september 1856, d. 5. júní 1922, Einarssonar og konu Árna, Guðfinnu Austmann.

Börn Jónínu og Sigfúsar voru:
Ragnheiður Stefanía yfirhjúkrunarfræðingur í Vesturálfu, f. 1883.
Brynjúlfur kaupmaður og tónlistarfrömuður, f. 1. mars 1885, d. 27. febrúar 1951.
Árni kaupmaður, f. 1887, d. 7. mars 1948.
Leifur tannlæknir, f. 1892, d. 25. febrúar 1947.

Lífshlaupi Jónínu og Sigfúsar er að nokkru lýst í Bliki 1967: III. Sigfús Árnason, organisti og er á það vísað.

Heimildir

• Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
• Blik 1967, III. Sigfús Árnason, organisti
• Ættir Austfirðinga. Einar Jónsson og fleiri. Austfirðingafélagið í Reykjavík 1953-1968.
• Íslenzkar æviskrár. Páll Eggert Ólason og fleiri. Hið íslenzka bókmenntafélag 1948-1956.
• Frændgarður. Björn Magnússon. Prentsmiðjan Leiftur 1981.
• Manntöl.
• Íslendingabók.is.