„Ingunn Jónasdóttir (Skuld)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Ingunn Jónasdóttir''' húsfreyja í Skuld fæddist að Helluvaði á Rangárvöllum 23. nóvember 1883 og lézt 28. apríl 1960.<br> Foreldrar hennar voru Jónas Ingvarsson bóndi ...)
 
Ekkert breytingarágrip
Lína 24: Lína 24:
{{Heimildir|
{{Heimildir|
*Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson.
*Rangvellingabók. Valgeir Sigurðsson.
*[[Guðrún Jónasdóttir (Skuld)|Guðrún Jónasdóttir]] og [[Steinar Júlíusson]].}}
*[[Guðrún Jónasdóttir (Skuld)|Guðrún Jónasdóttir]] og [[Steinar Júlíusson]].
*[[Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum|Úr dagbókarblöðum Agnesar Aagaard, sýslumannsfrúar í Vestmannaeyjum]]}}
 
[[Flokkur:Húsfreyjur]]
[[Flokkur:Húsfreyjur]]
[[Flokkur:Fólk fætt á 19. öld]]
[[Flokkur:Fólk fætt á 19. öld]]
[[Flokkur:Fólk dáið á 20. öld]]
[[Flokkur:Fólk dáið á 20. öld]]
[[Flokkur:Íbúar við Vestmannabraut]]
[[Flokkur:Íbúar við Vestmannabraut]]

Útgáfa síðunnar 26. júní 2012 kl. 21:01

Ingunn Jónasdóttir húsfreyja í Skuld fæddist að Helluvaði á Rangárvöllum 23. nóvember 1883 og lézt 28. apríl 1960.
Foreldrar hennar voru Jónas Ingvarsson bóndi á Helluvaði, f. 20. september 1862 í Eystri-Hól, d. 15. júní 1924 að Helluvaði, og kona hans Elín Jónsdóttir húsfreyja, f. 10. nóvember 1856 á Oddsstöðum, d. 12. apríl 1911. Foreldrar Elínar voru Jón Þorgeirsson bóndi á Oddsstöðum, f. 1808, d. 6. júní 1866. Móðir Elínar og kona Jóns var Margrét Halldórsdóttir frá Steinum u. Eyjafjöllum, f. 16. janúar 1832, d. 15. febrúar 1919.
Maki Ingunnar var Sigurður Oddsson útvegsbóndi, f. 28. marz 1880, d. 10. maí 1945.
Þau Sigurður fluttu til Eyja frá Rangárvöllum 1907 og byggðu húsið Skuld við Vestmannabraut, í félagi við Stefán Björnsson.
Í Skuld rak Ingunn fjölmennt heimili. Hún eignaðist ellefu börn, þar af fæddust 10 í Skuld.
Þau voru skipstjórarnir
Jónas, sem fæddist að Helluvaði;
Oddur;
Ólafur;
Jónas Ragnar prentari.
Dætur þeirra voru húsfreyjurnar
Þórunn Lovísa, sem varð kona Guðna Grímssonar lengi skipstjóra á Maggý;
Elínborg;
Sigurbjörg;
Stefanía;
Jóhanna Júlía;
Jónheiður Árný og
Sigríður Inga kona Ingólfs Theodórssonar netagerðarmeistara.
Síðar rak Ingunn nokkra umboðssölu um árabil fyrir Guðmund Andrésson gullsmið í Reykjavík.

ctr


Fjölskylda Ingunnar í Skuld 1927.

Heimildir