Ingólfur Guðjónsson (Skaftafelli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. júní 2007 kl. 16:01 eftir Dadi (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. júní 2007 kl. 16:01 eftir Dadi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Ingólfur

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Ingólfur Guðjónsson


Ingólfur Guðjónsson fæddist í Vestmannaeyjum 15. júlí 1913 og ólst upp á Skaftafelli. Hann andaðist á heimili sínu 23. janúar 1999. Foreldrar hans voru Guðjón Hafliðason og Halldóra Þórólfsdóttir. Ingólfur átti tíu systkini og var hann elstur í þeim systkinahópi. Hin eru: Trausti, Guðbjörg, Auður, Haraldur, Rebekka, Elísabet, Óskar, Anna, Ester og Hafliði. Hinn 20. nóvember 1943 kvæntist Ingólfur Jóhönnu Hjartardóttur frá Saurum í Laxárdal, f. 24.8. 1911, d. 27.12. 1998. Ingólfur og Jóhanna eignuðust tvo syni, átta barnabörn og átta barnabarnabörn. Synir þeirra eru Hjörtur Ásgeir, f. 1945, og Jóhannes Esra, f. 1948.

Ingólfur og Jóhanna bjuggu lengst af í Lukku í Vestmannaeyjum en fluttu til Reykjavíkur í gosinu 1973. Í Vestmannaeyjum vann Ingólfur í Lifrarsamlaginu, síðan sneri hann sér að hænsnabúskap og garðrækt. Er til Reykjavíkur kom vann hann sem baðvörður í Laugarnesskóla þar til hann hætti störfum vegna aldurs.