Hrefna Baldvinsdóttir (Steinholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Hrefna Baldvinsdóttir)
Fara í flakk Fara í leit

Hrefna Baldvinsdóttir frá Steinholti við Kirkjuveg 9a, launafulltrúi fæddist þar 23. janúar 1954.
Foreldrar hennar voru Baldvin Skæringsson frá Rauðafelli u. Eyjafjöllum, sjómaður, matsveinn, stýrimaður, skipstjóri, bátasmiður, f. 30. ágúst 1915, d. 24. febrúar 2006, og kona hans Þórunn Elíasdóttir húsfreyja, f. 1. desember 1916, d. 29. júlí 1990.

Börn Þórunnar og Baldvins:
1. Kristín Elísa Baldvinsdóttir húsfreyja, starfsmaður Íslandspósts, f. 19. ágúst 1936 á Bala í Djúpárhreppi, d. 19. júlí 2003. Maður hennar Hörður Runólfsson.
2. Elías Baldvinsson slökkviliðsstjóri, f. 1. júní 1938 á Háarima í Djúpárhreppi, d. 16. september 2003. Kona hans Halla Guðmundsdóttir, látin.
3. Baldur Þór Baldvinsson húsasmíðameistari í Kópavogi, f. 19. júní 1941 á Staðarfelli. Fyrrum kona hans Arndís Ármann Steinþórsdóttir. Kona hans Hugrún Hlín Ingólfsdóttir, látin.
4. Kristinn Skæringur Baldvinsson húsasmíðameistari í Eyjum, f. 29. júní 1942 í Steinholti. Kona hans Sigríður Mínerva Jensdóttir.
5. Ragnar Þór Baldvinsson bifvélavirki, slökkviliðsstjóri í Eyjum, f. 31. desember 1945 í Steinholti. Kona hans Anna Jóhannsdóttir.
6. Birgir Þór Baldvinsson kennari í Reykjavík, f. 15. janúar 1952 í Steinholti. Kona hans Halldóra N. Björnsdóttir.
7. Hrefna Baldvinsdóttir húsfreyja, launafulltrúi hjá Vestmannaeyjabæ, f. 23. janúar 1954 í Steinholti. Maður hennar Snorri Þ. Rútsson.
8. Baldvin Gústaf Baldvinsson sagnfræðingur, framkvæmdastjóri hjá Seagold, dótturfyrirtæki Samherja í Hull, f. 30. ágúst 1957. Kona hans Anna Gunnlaugsdóttir.
9. Hörður Baldvinsson safnstjóri Byggðasafns Vestmannaeyja, síðan framkvæmdastjóri Þekkingarsetursins, f. 25. nóvember 1961. Kona hans Bjarney Magnúsdóttir.

Hrefna var með foreldrum sínum, bjó hjá þeim í Steinholti og við Illugagötu 7.
Hún varð gagnfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1972.
Hrefna var launafulltrúi hjá Vestmannaeyjabæ.
Þau Snorri giftu sig 1975, eignuðust eitt barn. Þau búa við Hrauntún 65.

I. Maður Hrefnu, (14. mars 1975), er Snorri Þorgeir Rútsson íþrótta- og ökukennari, f. 10. febrúar 1953.
Barn þeirra:
1. Rútur Snorrason sölufulltrúi í Hafnarfirði, f. 28. mars 1974. Kona hans Hind Hannesdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.