Hjörleifur Sveinsson (eldri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. janúar 2020 kl. 20:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. janúar 2020 kl. 20:54 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Hjörleifur Sveinsson (eldri)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Hjörleifur Sveinsson


Hjörleifur í október 1979.

Hjörleifur Sveinsson fæddist 23. janúar 1901 og lést 29. október 1997. Eiginkona hans hét Þóra Arnheiður Þorbjarnardóttir og áttu þau fjögur börn. Þau voru Guðbjörg, Friðrik Ágúst Hjörleifsson, Anna og Sveinn.

Frekari umfjöllun

Hjörleifur Sveinsson í Skálholti, sjómaður, vélstjóri, útgerðarmaður, netamaður fæddist 23. janúar 1901 í Selkoti u. Eyjafjöllum og lést 29. september 1997 í Hraunbúðum.
Foreldrar hans voru Sveinn Jónsson bóndi, f. 7. október 1874, d. 15. janúar 1920, og kona hans Anna Valgerður Tómasdóttir húsfreyja, f. 11. ágúst 1871, d. 5. maí 1963.

Börn Önnu og Sveins:
1. Guðrún Sveinsdóttir húsfreyja í Skarðshlíð, f. 25. ágúst 1897, d. 25. maí 1988. Maður hennar Jón Hjörleifsson.
2. Guðjón Sveinsson sjómaður, f. 30. ágúst 1898, d. 15. maí 1968. Kona hans Marta Eyjólfsdóttir.
3. Tómas Sveinsson sjómaður, verkstjóri, f. 14. ágúst 1903, d. 24. apríl 1988. Kona hans Líney Guðmundsdóttir.
4. Gróa Sveinsdóttir húsfreyja í Selkoti, f. 18. júlí 1906, d. 17. desember 1994. Maður hennar Gissur Gissurarson.
5. Sigfús Sveinsson sjómaður, f. 24. apríl 1907, d. 18. nóvember 1993. Kona hans Guðrún Gissurardóttir.

Hjörleifur var með foreldrum sínum í æsku.
Hann lauk skipstjóra- og vélstjóraprófi. Hjörleifur var sjómaður í Eyjum og var jafnframt í útgerð. Vann hann með Jóni á Hólmi og bjó þar í fyrstu. Hann hætti sjómennsku 1940 og starfaði í Vélsmiðjunni Magna og frá 1950 við vélaviðhald hjá Fiskiðjunni. Þá var hann netamaður við útgerð Sveins sonar síns.
Þau Þóra giftu sig 1926, eignuðust fimm börn, en misstu eitt þeirra sólarhringsgamalt.
Þau bjuggu í Skálholti við Landagötu 22 meðan bæði lifðu.
Hjörleifur fluttist til Ágústs sonar síns og Önnu í Reykjavík við Gosið og bjó hjá þeim í nítján ár. Þá fluttist hann að Hraunbúðum og bjó þar til hins síðasta.
Þóra Arnheiður lést 1970. Hjörleifur lést 1997.

ctr
Hjörleifur, Þóra og afkomendur. Smelltu á myndina til að fá ítarlega lýsingu á fólkinu.

I. Kona Hjörleifs, (16. október 1926), var Þóra Arnheiður Þorbjarnardóttir húsfreyja, f. 18. október 1903, d. 6. júlí 1970.
Börn þeirra:
1. Sveinn Hjörleifsson skipstjóri, útgerðarmaður, f. 1. ágúst 1927, d. 4. janúar 2004. Kona hans Aðalheiður Pétursdóttir.
2. Anna Hjörleifsdóttir húsfreyja, póstvarðstjóri í Reykjavík, f. 31. mars 1929, d. 21. febrúar 2018. Maður hennar Sigmundur Páll Lárusson.
3. Friðrik Ágúst Hjörleifsson sjómaður, útgerðarmaður, bifreiðastjóri, f. 16. nóvember 1930 í Skálholti, d. 7. október 2014. Kona hans Anna Jóhanna Oddgeirs.
4. Guðbjörg Marta Hjörleifsdóttir húsfreyja, f. 20. júlí 1932 í Skálholti. Maður hennar Egill Kristjánsson.
5. Drengur, f. 7. mars 1940, d. sama dag.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.


Myndir