Henry Ágúst Erlendsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. september 2022 kl. 20:09 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. september 2022 kl. 20:09 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Henrý Ágúst Åberg Erlendsson.

Henry Ágúst Åberg Erlendsson ketil- og plötusmiður fæddist 15. nóvember 1946 á Jaðri við Vestmannabraut 6 og lést 8. desember 2018 á sjúkrahúsi á Spáni.
Foreldrar hans voru Erlendur Hvannberg Eyjólfsson frá Jaðri, járnsmiður, f. 23. nóvember 1919, d. 28. desember 2000, og kona hans Helga Åberg, húsfreyja, f. 10. október 1925 í Kaupmannahöfn, d. 22. nóvember 2005.

Börn Helgu og Erlendar:
1. Henry Ágúst Erlendsson plötu- og ketilsmiður, bifreiðastjóri í Eyjum, verktaki, f. 15. nóvember 1946. Kona hans Þóra Sigríður Sveinsdóttir húsfreyja.
2. Jónasína Þóra Erlendsdóttir, f. 14. desember 1947, d. 25. janúar 1948.
3. Jónasína Þóra Erlendsdóttir húsfreyja á Höfn í Hornafirði og í Hafnarfirði, f. 13. júní 1950, d. 20. júlí 2013. Maður hennar var Eiríkur Þorleifsson skipstjóri.

Henry var með foreldrum sínum í æsku.
Hann varð 4. bekkjar ganfræðingur í Gagnfræðaskólanum 1963, lærði járn og plötusmíði.
Henry var í sjálfstæðum rekstri megin hluta starfsævi sinnar og bifreiðastjóri. Hann var einn af stofnendum Hljómsveitarinnar Logar.
Þau Þóra Sigríður giftu sig 1967, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Hrauntúni 2, síðar að Brimhólabraut 25.
Henrý lést 2018.

I. Kona Henrys Ágústs, (19. nóvember 1967), er Þóra Sigríður Sveinsdóttir húsfreyja, f. 27. september 1948.
Börn þeirra:
1. Sveinn Henrysson í Reykjavík, f. 25. febrúar 1968. Barnsmóðir hans Fanney Herdís Magnúsdóttir. Kona hans Kristi Jo Kristinsson.
2. Helga Åberg Henrysdóttir, f. 7. október 1970. Maður hennar Ólafur Gunnarsson.
3. Arnþór Henrysson í Reykjavík, f. 10. maí 1976. Barnsmóðir hans Nancy Lyn Jóhannsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.