„Helga Einarsdóttir (Búastöðum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: '''Helga Einarsdóttir''' húsfreyja í Berjanesi u. Eyjafjöllum, síðar á Búastöðum fæddist 1829, á lífi 1890.<br> Faðir hennar var Einar bóndi í Svaðbæ...)
 
m (Verndaði „Helga Einarsdóttir (Búastöðum)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 8. maí 2014 kl. 20:57

Helga Einarsdóttir húsfreyja í Berjanesi u. Eyjafjöllum, síðar á Búastöðum fæddist 1829, á lífi 1890.
Faðir hennar var Einar bóndi í Svaðbæli u. Eyjafjöllum, f. 31. desember 1795, d. 31. maí 1866, Bjarnason bónda í Núpakoti u. Eyjafjöllum, f. 1733, d. 28. júní 1806, Bjarnasonar „eldri“ frá Búlandi Eiríkssonar, og konu Bjarna, Kristínar húsfreyju frá Kálfafellsstað í Suðursveit, f. 1702, Jakobsdóttur prests Bjarnasonar.
Móðir Einars Bjarnasonar og kona Bjarna var Steinvör húsfreyja, f. 1753, d. 6. desember 1823, Steinsdóttir bónda á Bökkum u. Eyjafjöllum, f. (1720), Þorgeirssonar, og konu Steins, Geirlaugar húsfreyju, f. 1718, Oddsdóttur.

Móðir Helgu á Búastöðum og kona Einars í Svaðbæli var Sigríður húsfreyja, f. 1798 í Pétursey, d. 11. apríl 1879, Eyjólfsdóttir bónda, lengst í Pétursey í Mýrdal, f. 1776, d. 28. júlí 1838, Stefánssonar bónda í Pétursey, f. 1738, d. 29. júní 1828 í Pétursey, Eyjólfssonar, og konu Stefáns, Önnu húsfreyju, f. 1740, d. 26. október 1829, Jónsdóttur.
Móðir Sigríðar í Svaðbæli og kona Eyjólfs í Pétursey var Guðrún húsfreyja, f. 1768 í Reynissókn, d. 30. júlí 1846 í Svaðbæli, Jónsdóttir.

Helga var 6 ára með foreldrum sínum í Svaðbæli 1835, 11 ára þar 1840, 17 ára þar 1845.
Þau Einar voru gift vinnuhjú í Svaðbæli hjá foreldrum Helgu 1850.
Þau voru bændahjón á Leirum þar 1855 með barninu Margréti Árnadóttur eins árs.
Við manntal 1860 voru þau komin að Berjanesi með börnin Margréti 5 ára, Katrínu 4 ára og Einari 2 ára.
Við manntal 1870 voru hjónin komin að Búastöðum með börnin Guðrúnu 6 ára og Ingvar 4 ára. Katrín var 14 ára niðursetningur í Vallatúni u. Eyjafjöllum, Margrét 15 ára niðursetningur í Drangshlíðardal þar og Einar niðursetningur í Ysta-Skála þar.
Við manntal 1880 voru þau Helga enn á Búastöðum og við hafði bæst barnið Kristmundur 8 ára, en börnin Margrét, Katrín og Einar voru ekki með þeim.
1890 var Helga 63 ára ekkja og vinnukona í Nýjabæ og þar var Kristmundur 18 ára léttadrengur.

Maður Helgu á Búastöðum var Árni Einarsson bóndi á Búastöðum, f. 27. janúar 1827, á lífi 1880.
Börn Helgu og Árna:
1. Margrét Árnadóttir húsfreyja í Brekkuhúsi, f. 24. maí 1855. Hún fór til Vesturheims 1905 frá Brekkuhúsi með Guðlaugi Sigurðssyni bónda, 4 börnum þeirra og föður Guðlaugs Sigurði Ögmundssyni.
2. Katrín Árnadóttir, f. 1856, d. 21. mars 1938. Hún var húsfreyja á Ísólfsstöðum á Tjörnesi, S-Þing.
3. Einar Árnason, f. 1858. Hann var 2 ára barn í Berjanesi u. Eyjafjöllum 1860.
4. Einar Árnason, f. 25. mars 1862, d. 24. ágúst 1902. Hann var bóndi í Ólabæ í Húsavíkursókn 1901.
5. Guðrún Árnadóttir, f. 1863.
6. Ingvar Árnason útvegsbóndi, sjómaður í Hólshúsi, f. 1. október 1865, d. 9. febrúar 1951.
7. Kristmundur Árnason, f. 2. júlí 1872, d. 19. desember 1935. Fór til Vesturheims 1905 frá Hólshúsi.

 ----

Heimildir