Hansína Árný Magnúsdóttir (Dölum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. ágúst 2015 kl. 20:00 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. ágúst 2015 kl. 20:00 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Ársæll, Hansína og Maggý.

Hansína Árný Magnúsdóttir frá Vesturhúsum, húsfreyja í Dölum fæddist 12. janúar 1904 og lést 16. september 1980.
Foreldrar hennar voru Magnús bóndi og formaður á Vesturhúsum, fæddur 27. júní 1872, Guðmundsson og kona Magnúsar, Jórunn húsfreyja, fædd 30. september 1880, Hannesdóttir á Miðhúsum Jónssonar í Nýja-Kastala.
Maður Hansínu var Ársæll Grímsson bóndi og síðan bústjóri í Dölum, f. 9. janúar 1901 á Eyrarbakka, d. 23. febrúar 1998.

Hansína var hjá foreldrum sínum á Vesturhúsum, varð húsfreyja í Dölum, þar sem þau Ársæll bjuggu. Þegar Bærinn fékk byggingu fyrir Dölum og reisti þar kúabú, varð Ársæll þar fyrsti bústjóri. Þau Ársæll fluttust til Hafnarfjarðar 1946, þar sem þau voru bændur á Hvaleyri.
Börn Ársæls og Hansínu:
1. Maggý Jórunn, f. 9. apríl 1927.
2. Margrét, f. 2. desember 1928, d. 23. apríl 1990.
3. Erla, f. 30. júní 1930.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.