Gyðríður Stefánsdóttir (Mandal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. desember 2012 kl. 11:06 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. desember 2012 kl. 11:06 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Gyðríður Stefánsdóttir''', (Gyða í Mandal), fæddist 20. júní 1863 í Sauðhúsnesi í Álftaveri og lést 25. ágúst 1951 í Eyjum.<br> Foreldrar hennar voru Stefán bóndi...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Gyðríður Stefánsdóttir, (Gyða í Mandal), fæddist 20. júní 1863 í Sauðhúsnesi í Álftaveri og lést 25. ágúst 1951 í Eyjum.
Foreldrar hennar voru Stefán bóndi á Sauðhúsnesi, f. 1827, Höskuldsson bóndi í Sauðhúsnesi, f. 1799, Guðlaugssonar bónda í Götum í Mýrdal, Jónssonar.
Kona Stefáns Höskuldssonar var Sigríður, f. 1822, Einarsdóttir bónda á Efri-Fljótum í Langholtssókn 1835, Jónssonar, og konu Einars bónda, Guðrúnar Gísladóttur húsfreyju.
Gyðríður var hjá foreldrum í Sauðhúsnesi 7 ára 1870 og hjá þeim til 1884, fyrir búi þar 1884-85, bústýra þar hjá manni sínum 1885-97, vinnukona á Þykkvabæjarklaustri 1897-98, á Skaftárdal 1898-99, í Hraungerði 1899-1900, á Þorvaldseyri 1900-01, í Stakkagerði í Eyjum hjá Gísla Lárussyni 1901 og enn 1910, bústýra í Eyjum 1920 og enn 1950 og áfram til dd.
Lítt ráðnir aðkomumenn, sérstaklega sveitungar Gyðu voru aufúsugestir hjá henni, meðan þeir leituðu sér staðfestu á vertíð.
Maki (sambúð): Árni, f. 27. nóvember 1857, d. 26. janúar 1897, Runólfsson bónda, f. 1833, Jónssonar bónda í Svínadal, V-Skaft., f. um 1797, Runólfssonar. Kona Jóns Runólfssonar og móðir Runólfs var Ingibjörg Þorsteinsdóttir húsfreyja í Svínadal, f. 1809. Móðir Árna var Guðrún Einarsdóttir, f. um 1818.
Þau Árni bjuggu í Sauðhúsnesi í Álftaveri 1885-1897. Gyðríður er skráð þar bústýra. Árni lézt 1897.
Sauðhús eyddist í Kötluhlaupinu 1918.
Börn:
1. Sigríður í Merkisteini, f. 10. apríl 1886, d. 19. september 1972, kona Sigurðar Björnssonar bátasmiðs. Þau voru foreldrar Jóns Ísaks Sigurðssonar lóðs. Síðari maður hennar (1948) var Þorbjörn Arnbjörnsson og var hún seinni kona hans.
2. Guðrún, f. 9. febrúar 1888, d. 3. apríl s.ár.
3. Jón, f. 28. október 1889, d. 15. ágúst 1965, bóndi í Holti í Álftaveri 1919-1961.
4. Ingibjörg, f. 8. október 1891, d. 23. september 1908, tökubarn í Svínadal 1893-dd.
5. Stefán, f. 31. desember 1892, d. 29. júlí 1977, yfirlögregluþjónn.
6. Guðmundur, f. 3. mars 1895, d. 31. desember 1915.
7. Guðlaugur, f. 30. apríl 1896, d. 3. ágúst s. ár.
8. Barn Gyðríðar með Sigurði, Árný (Árný í Suðurgarði), f. 23. desember 1904, d. 15. október 1977.


Heimildir

  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.
  • Manntöl.
  • Íslendingabók.
  • Google – Iceland.